28.12.1916
Neðri deild: 7. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í B-deild Alþingistíðinda. (96)
19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins
Flutningsm. (Matthías Ólafsson):
Jeg get verið fáorður, sumpart af því, að frv. er borið fram eftir þegjandi samkomulagi svo að segja allra þingmanna, sumpart af því, að ástæðurnar eru tilfærðar í athugasemdum við frv. sjálft. Þó vil jeg stuttlega minnast á nokkur einstök atriði.
Launin eru sett þau sömu, sem í stj.frv. 1915, sem sje 8000 kr., en forsætisráðherranum auk þess ætlaður leigulaus bústaður og risnufje, 2000 kr. Þessi laun mega ekki kallast há, síst eins og nú stendur á.
Eins og menn muna, bar stjórnin fram frv. um fjölgun ráðherra á þingi 1915; frv. var þá vísað frá með rökstuddri dagskrá, þess efnis, að stjórn og þjóð tækju málið til nánari íhugunar. Þessu máli hefir verið hreyft á leiðarþingum, og yfirleitt munu menn vera þessu fyrirkomulagi fylgjandi, svo að mótspyrnu mun ekki þurfa að óttast frá þjóðinni, og þá ætti ekki að þurfa, að búast við henni hjer.
Þá skal jeg geta þess, að af misgáningi hafði verið sett í frv. ákvæðið um ferðakostnað ráðherra, en úr því er bætt með brtt. á þgskj. 26. Það segir sig sjálft, að landið verður að greiða ferðakostnað ráðherra, hvert sem hann fer í þarfir landsins.
Þá er fram komin brtt. á þgskj. 28. En jeg býst við, að flutningmenn gjöri grein fyrir henni við 2. umr., og skal því ekki fara nánara út í hana nú. Að öðru leyti vil jeg óska þess, að umræður yrðu sem stytstar, svo að frv. gangi greiðlega fram.