12.01.1917
Efri deild: 22. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (994)

Þinglok efri deildar

Forseti:

Nú er þá fundarefninu lokið, en jeg get ekki sagt fundi slitið fyr en gjörðabók er fullrituð, og verð því að fresta fundinum stundarkorn. — —

Áður en jeg slít þessum fundi, vildi jeg láta þess getið, að vjer hjer í hæstvirtri Ed. Alþingis höfum átt með oss 22 þingfundi. En þetta aukaþing hefir afgreitt 13 lagafrumvörp og 10 þingsályktunartillögur. Ein þeirra á þó eftir úrslita umræðu í sameinuðu þingi á morgun.

Jeg leyfi mjer að þakka yður, hv. þingbræður, fyrir alla þá velvild, er þjer hafið sýnt mjer í hvívetna sem forseta þessarar hæstvirtu þingdeildar. Það er von mín og þess óska jeg af heilum hug, að þingstarf vort reynist heillaríkt og hamingjusamt fyrir land og lýð.

Svo óska jeg yður, þingbræður, góðrar heimkomu og vona, að við hittumst allir aftur heilir á þingi.