01.08.1917
Neðri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1009)
64. mál, tollalög
Hákon Kristófersson:
Jeg ætla ekki að fara að karpa við háttv. frsm. (Þór. J.). Hann furðaði sig á, að jeg skyldi gera greinarmun á vindlingum og tóbaki. Jeg skil þó ekki í, að mönnum geti blandast hugur um, að vindlingar eru frekar óþarfir, þar eð menn eiga kost á að fá tóbak, sem þeir geta reykt í pípunni sinni. (E. A.: Ekki kvenfólkið). Viðvíkjandi ölinu benti háttv. frsm. (Þór. J.) á það, að kaupstaðarbúar gætu eins fengið sjer sýrukvartel ofan úr sveit og drukkið blöndu. Jeg get verið honum sammála um það, að súr blanda er mjög hollur drykkur, og væri gott fyrir kaupstaðarbúa að geta haft sem mest af henni, en tæplega mun hann geta bent á margar sveitir, er mundu hafa svo mikla sýru aflögum, er nægja mundi fyrir marga kaupstaðarbúa, þar sem fráfærur eru víða lagðar niður. (Þór. J.: Hún er víða til). (J. B.: Þá geta menn drukkið vatn.) Jeg get vel fallist á það með sessunauti mínum, háttv. þm. Reykv. (J. B.), að það megi oft notast við vatn, og að það sje hollur drykkur, en hins vegar verð jeg að halda því fram, að óáfengt öl mætti í mörgum tilfellum koma í stað mjólkur, og ef það væri rjett álitið, þá getur það varla talist ónauðsynlegt, og þá síst vert að hækka toll á því. Að leggja þessa tollaukningu á sem verndartoll væri ekki rjettlátt, því að hið óáfenga öl, sem búið er til hjer í landi, er talið nær því ódrekkandi, og ætti því tæplega við, að innflutningur á betri tegund væri gerður ómögulegur með altof háum tollálögum.
Eins og háttv. frsm. (Þór. J.) tók fram gerði jeg þetta að engu kappsmáli í nefndinni, og ætla ekki heldur að gera það nú; jeg vildi að eins lýsa skoðun minni á þessu, sem er alveg samkvæm því, er jeg ljet uppi í nefndinni.