22.08.1917
Efri deild: 36. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (1020)
64. mál, tollalög
Magnús Torfason:
Jeg veit ekki, hvort það hefir verið rjett skilið hjá mjer, að háttv. þm. Snæf. (H. St.) kallaði tóbakið lyf. (H. St.: Nei, það gerði jeg ekki). Það hefir þá verið misheyrn, eins og jeg líka bjóst við. Annars vil jeg taka í sama strenginn og sá háttv. þm. (H. St.). Jeg lít svo á, að tóbakið sje orðin nauðsynjavara, sjerstaklega fyrir sjómenn, og því ekki rjett að hækka tollinn mjög mikið á því.
Ef litið er á tollhækkun þessa, sem farið er fram á í frv., þá kemur það fram, að af vindlum og vindlingum er hún örlítil, úr kr. 5,20 upp í kr. 6,00, en af tóbaki nemur hún 50%. Þetta finst mjer alls ekki sanngjarnt, þegar litið er til þess, að alþýða manna neytir nær eingöngu tóbaksins, en efnaðri menn vindlanna og vindlinganna.
Jeg vil þess vegna geyma mjer að koma með brtt. við þennan lið þar til við 3. umr. En annars vænti jeg, að þetta frv., sem vitanlega eykur tollana að mun, bendi til þess, að það þurfi að hafa eitthvert tolleftirlit í landinu.