24.08.1917
Efri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)
64. mál, tollalög
Halldór Steinsson:
Jeg á eina brtt. við frv. þetta, á þgskj. 592, með háttv. þm. Ísaf. (M. T.). Brtt. þessi fer í þá átt að fella burt b-lið 1. gr. frv., um hækkun á tóbakstollinum. Jeg þykist hafa fært nægileg rök fyrir því við 2. umr. málsins, að ógerningur sje að hækka þennan toll, og jeg tel óþarfa að endurtaka þau rök nú. Ef þessi brtt. nær fram að ganga, býst jeg við að greiða frv. atkv. mitt, því að hinar vörutegundirnar, sem frv. ræðir um, eru þannig, að menn eiga hægt með að komast af án þeirra, án þess að líða verulega við það. Annars er jeg, eins og jeg drap á við 2. umr. málsins, frekar andvígur stefnu frv., þótt jeg geri það ekki að ágreiningsmáli að þessu sinni.