24.08.1917
Efri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (1023)
64. mál, tollalög
Frsm. (Sigurður Eggerz):
Jeg geri ráð fyrir, að það fari að verða nokkuð lítið úr tekjuaukanum, sem ætlast var til að fengist með frv. þessu, ef brtt. á þgskj. 592 verða samþyktar. Áætlað hefir verið, að þessi hækkun á tóbakstollinum mundi nema nálægt 100,000 kr., en hækkunin á hinum vörutegundunum 30—40,000 kr. Jeg verð að játa, að það er rjett, sem háttv. þm. Snæf. (H. St.) hefir bent á, að margir líta svo á, að það sje rangt að leggja verulegan toll á tóbak, vegna þess, að það sje mörgum manni nauðsynjavara. En hins vegar hygg jeg, að engum geti dulist, hvern kostinn eigi að velja, þegar um það eitt er að ræða, hvort leggja skuli toll á tóbak eða eiginlega nauðsynjavöru. Að minsta kosti hefir hingað til ávalt verið litið svo á hjer í þinginu, að munaðarvara sje sjálfsagðastur tollstofn, sem unt sje að fá. Jeg vil því leyfa mjer að mæla með því, að brtt. verði feld og frv. samþ. óbreytt. Jeg býst við, að þegar fjárlögin koma til þessarar háttv. deildar, þá muni það koma í ljós, að hallinn sje svo mikill, að ekki muni veita af að reyna að afla einhverra tekna.