12.09.1917
Sameinað þing: 6. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (1038)
64. mál, tollalög
Frsm. í Ed. (Halldór Steinsson:
Jeg hefi haldið því fram, og háttv. Ed. hefir að mestu leyti verið mjer sammála í því efni, að eigi sje rjett að auka mikið tolla og skatta á þessu þingi. Jeg hefi litið svo á, að gjöldin á landsbúum væru orðin svo há, að ekki væri á þau bætandi nú á ófriðartímunum. Hjer er farið fram á að hækka að mun toll á tóbaki. Það þýðir ekki að slá því fram, að tóbak sje í raun og veru munaðarvara. Allir vita, að tóbak er notað sem nauðsynjavara, og margir geta ekki verið án tóbaks fremur en eiginlegra nauðsynjavara, nema síður sje. Jeg álít því ekki rjett að samþykkja svo gífurlega tollhækkun á þessari vöru, og það því síður, sem augljóst er, að hún kemur þyngst niður á fátæklingum. Því að fátæklingar munu yfirleitt neyta meir tóbaks en efnamennirnir. Þetta er aðalástæðan til þess, að jeg legst á móti þessari brtt. Það er langt frá því, að jeg álíti tóbaksnautn holla. Jeg álít hana þvert á móti ofmikla hjer í landi. En jeg hygg, að hækkun á tollinum sje ekki leiðin til að draga úr henni.
Hin ástæðan til þess, að jeg get ekki verið þessari hækkun samþykkur, er sú, að verði tollurinn hækkaður, eins og frv. fer fram á, þá verður hann jafnhár innkaupsverðinu. Og þá er mjög hætt við tollsvikum. En verði tollhækkunin til þess að auka tollsvik, þá er hætt við, að landssjóði verði lítill tekjuauki að frv.
Jeg verð því að leggja á móti brtt. af áðumefndum ástæðum, en hins vegar ætla jeg ekki að gera þetta að neinu sjerstöku kappsmáli.