12.09.1917
Sameinað þing: 6. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1288 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)

64. mál, tollalög

Guðjón Guðlaugsson:

Það er til máltæki, er segir: hingað og ekki lengra. Og er menn ræða um aukinn toll af tóbaki, hygg jeg kominn tíma til að hugsa um þetta máltæki. Jeg álít toll þennan þegar hafa náð hámarki sínu og hygg ófært að hækka hann enn þá. Jeg er sammála hv. þm. Snæf.

(H. St.), að þegar tollurinn er orðinn jafnhár því, sem nemur verði vörunnar, þá sje mál að láta staðar numið. Ef um skaðræðisvöru væri að ræða, væri miklu fremur vegur að banna innflutning á henni, enda þótt jeg sje slíkum bönnum algerlega mótfallinn. Öllu heldur ætti að mynda samtök gegn því, að þessi nautn færist meir í vöxt, og til að útrýma henni. Tollur þessi er á annan bóginn sama sem bann, en á hinn bóginn gefur hann freistingunni til tollsvika undir fótinn. Þegar hægt er að kaupa munntóbak eða neftóbak frá útlöndum fyrir 1 kr. pundið, en það kostar með tolli og kaupmannsgróða 3 kr. pundið, þá sjá allir, hve mikil freisting er til þess að svíkjast undan tollinum. Og því meiri verður freistingin, þegar hækka á tollinn um þriðjung. Menn verða að gæta þess, að þegar ófriðnum linnir og siglingar aukast til landsins, mun freistingin til að fara í kringum tolllög og bannlög verða ríkari en nokkru sinni áður.

Mjer finst þingið ætla að vera nokkuð harðbrjósta við þá, er tóbaks neyta. Margir þeirra eru gamalmenni, sem eiga við lítil efni og miður góða heilsu að búa. Þeim hlýtur að sárna, er þeim er gert ókleift að neyta þessarar vöru, sem þeir mega ekki án vera, en efnahagur þeirra leyfir þeim hins vegar ekki að neyta í hófi, sakir þess, hve dýr hún verður. Mjer finst þetta því vera gert til að græta gamalmennin. Og að því er þessa nautn snertir, finst mjer ekki hægt að jafna henni við vínnautn, þótt jeg hins vegar sje mótfallinn aðflutningsbanni á þeirri vöru. Drykkjumenn þurfa oftast ekki nema nokkra daga til að gleyma víninu. En tóbaksnautnin er svo samgróin mönnum, að þeir geta ekki gleymt henni, og þeim líður ekki vel, ef þeir eru sviftir henni.

Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) lagði áherslu á það, að ekki væri rjett stefna að fella öll frv. í þinginu, sem ykju tekjur landssjóðs. Það er alveg rjett mál, en hann hefði átt að sýna þá skoðun í verkinu í gær, betur en hann gerði, þegar hann greiddi atkvæði á móti brtt. við fjárlögin, sem veitir landssjóði 40000 kr. tekjur. Það mun þó ekki koma neinum manni til að tárfella, heldur verða þinginu til sóma og þjóðinni til gagns, ef það nær fram að ganga. Og það er jeg sannfærður um, að enginn myndi áfella þingið fyrir að leyfa sölu á lyfinu (Kínabitter), og hitt er víst, að það getur að gagni komið, þótt ekki sje nema fyrir þá tröllatrú, er sumir hafa á því.

Það verður því ekki sagt, að hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) sje sjálfum sjer samþykkur, ef hann heldur fast við frv. þetta, eins og það var samþykt hjá háttv. Nd.

Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) komst svo að orði, að feld væru öll tekjufrumvörp. Það er ekki rjett. Báðum háttv. deildum kemur saman um að hækka tollinn á flestum þeim vörum, sem getið er um í frv. Hjer er því ekki um það að ræða að fella frv., heldur að eins að breyta því.

Hins vegar verður því ekki neitað, að frv. kann að fá færri atkv., ef brtt. verður samþykt.

Þá er hjer var komið umræðum, kom fram ósk um, að þeim skyldi þegar hætt, frá þessum þm.: J. B., E. Árna., Sv. Ó., E. J., B. St., M. P., M. G., E. A., St. St., Þorst. J.

Frseti kvaðst skilja ósk þessa svo, að umræðum skyldi hætt þá er þeir hefðu lokið máli sínu, er beðið hefðu sjer hljóðs. Væri það samkvæmt þingvenju að slíta eigi fyr umræðum þegar svo stæði á. Bjóst hann til að bera það undir atkv. þm., hvort hætt skyldi umræðum þá er talað hefðu þeir, er nú hefðu beðið sjer hljóðs, en þá tóku þeir E. A. og M. P. aftur nöfn sín undir beiðninni um, að umræðum skyldi hætt, úr því að forseti hefði úrskurðað, að það yrði eigi þegar gert, eins og farið hefði verið fram á.

Málið kom því eigi til atkvæða, með því að nú var eigi lögfull tala þeirra þm., er óskað höfðu, að umr. skyldi hætt, og hjeldu því umr. áfram.