12.09.1917
Sameinað þing: 6. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1290 í B-deild Alþingistíðinda. (1041)

64. mál, tollalög

Frsm. í Nd. (Þórarinn Jónsson):

Það hafa komið fram allsterk mótmæli gegn brtt. 859. Hv. þm. Snæf. (H. St.) byrjaði á því að sýna fram á, að varasamt væri að hækka tolla, sjerstaklega nú á þessum erfiðu tímum.

Því verður ekki neitað, að landsmenn eigi erfiðara með að anna þeim nú en endrarnær, en þess ber að gæta, að þörf landssjóðs hefir aldrei verið brýnni en einmitt nú að fá eitthvað upp í þau útgjöld, sem alveg eru óhjákvæmileg vegna dýrtíðarinnar.

Jeg álít þess vegna ekki rjett að fella tollaukningar þær, sem þingið hefir leitast við að innleiða.

Háttv. þm. Snæf. (H. St.) taldi tóbakið nauðsynjavöru, þar eð menn gætu ekki vanið sig af því; hann benti líka á, að hjer ættu fátæklingar sjerstaklega hlut að máli.

Háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) tók í sama strenginn, og hjelt því fram, að hækkun þessi mundi aðallega koma niður á fátæklingum. Það er að vísu fallegt og gott að tala þeirra máli, því að »fátæka hafið þjer jafnan hjá yður«, en hjer verður að athuga alla málavöxtu. Tökum t. d. meðaltóbaksmann; segjum að hann eyði 8—9 pundum á ári. Upphæð sú, er tollaukningin nemur, verður þá ekki svo gífurleg, 4—5 kr. á ári. Auðvitað má gera ráð fyrir, að sumir eyði meiru, en munurinn verður þó aldrei svo mikill, að það geri nokkrum manni ófært að greiða toll þennan.

Ef litið er til þeirra manna, sem eru á framfærslu sveitar, þá veit jeg ekki til þess, að nein sveitarstjórn hafi orðið til þess að svifta þá nautn þessari, og mun enginn heldur gera það vegna tollhækkunarinnar. Jeg held því, að það sje misskilningur, að menn geti ekki risið undir þessu.

Það mætti ef til vill halda því fram, að fátæklingar myndu spara við sig á öðrum sviðum ýmsar nauðsynjar, svo að þeir liðu af, til þess að geta neytt tóbaksins eftir sem áður. En ekki held jeg, að það geti komið til mála, þar sem upphæð þessi er svo lítil, að hennar gætir ekki. Þetta geta því ekki talist nægar ástæður á móti brtt., og þessi fátækrabarlómur háttv. þm. verður ekki þungur á metunum.

En nú er hins að gæta, að um leið og fjár er aflað í landssjóð getur það rýmkað til fyrir fátæklingunum á ýmsan hátt. Fjeð er þá orðið almenningseign, og landssjóður ætti að hafa öll tök á að verja því vel. Og mjer er nær að halda, að þessir háttv. þm. hefðu ekki á móti því að fá eitthvað af því til sinna kjördæma, ef því væri að skifta.

Þá benti háttv. þm. Snæf. (H. St.) á, að aukast myndu tollsvik við það, að tollurinn hækkaði svo mjög, að næmi innkaupsverði.

Jeg get ekki sjeð, að tollsvik þurfi að aukast sjerstaklega fyrir þá sök, að tollur verði jafnhár innkaupsverði. Að vísu eru altaf til einstakir menn, sem reyna til þess að flytja inn vörur án þess að greiða toll, en jeg hygg, að eftir því, sem eftirlitsmönnum bannlaganna er gefið meira vald, þá munu þeir frekar telja sjer skylt að líta eftir fleiru og gæta þess einnig, að tollsvik sjeu ekki framin á öðrum sviðum.

Þetta verður því ekki heldur næg ástæða til að fella brtt.

Hv. 4. landsk. þm. (G. G.) sagði, að mönnum mundi takast fljótar og hægar að venja sig af víni en tóbaki. Jeg sje ekki, að það komi málinu við. Hjer er ekki til þess ætlast að venja menn af tóbaki, heldur er þetta tilraun til að afla landinu tekna, sem engum verði um megn að greiða, og mun því óhætt að ganga út frá tekjuauka þeim, er ráð er gert fyrir, ef brtt. verður samþykt.