18.07.1917
Neðri deild: 13. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1300 í B-deild Alþingistíðinda. (1049)
68. mál, Bakkagerði í Borgarfirði
Flm. (Þorsteinn Jónsson):
Jeg sje, að meinleg ritvilla hefir slæðst inn í fyrirsögn frv. á þgskj. 76. Þar stendur 1885, í staðinn fyrir 1895. Með lögum þeim, sem hjer er farið fram á að breyta, var löggiltur verslunarstaður hjá Bakkagerði í Borgarfirði. Bakkagerði er upphaflega hjáleiga úr Bakkalandi og hvortveggja jarðirnar liggja saman að höfninni, þar sem kauptúnið Borgarfjörður er nú. Nálega helmingur kauptúnsins er bygður í Bakkalandi. Hefir þótt hentugra að byggja þar en í Bakkagerðislandi, og liggja til þess ýmsar orsakir, meðal annars sú, að land er þar betur fallið til ræktunar. En með því nú að Bakki er ekki löggiltur verslunarstaður, heldur að eins Bakkagerði, þá fer sá hluti þorpsbúa, sem hús á í Bakkalandi, á mis við ýms rjettindi, sem hinir njóta. Í Bakkalandi má
t. d. ekki reka verslun, nema þá að fá sveitaverslunarleyfi, og húseigendur fá ekki lán út á hús þau, sem standa í þessum hluta kauptúnsins. Er það einkum þess vegna, sem jeg flyt frv. þetta. Og þar sem þetta hefir ekki í för með sjer neinn kostnað fyrir landið og getur ekki komið í bága við hagsmuni nokkurs manns, en gæti hins vegar orðið til hagsbóta þeim mönnum, sem hlut eiga að máli, þá vona jeg, að frv. fái fram að ganga óhindrað af þinginu.