15.09.1917
Efri deild: 58. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (1103)

72. mál, hagnýt sálarfræði

Frsm. (Magnús Torfason):

Eins og háttv. deild mun kunnugt hefir þessum manni, sem hjer er farið fram á að gera að prófessor, verið lögð til talsverð vinnufúlga í fjárlagafrv., og er þegar af þeirri ástæðu engin þörf á embætti þessu. Og ekki er embættið heldur nauðsynlegt fyrirlestranna vegna. Maðurinn hefir, sem doktor í heimspeki, rjett á að halda fyrirlestra við Háskólann, og býst jeg ekki við, að honum verði meinað þar húsrúm. Jeg býst við því, að fult eins ánægjulegt mundi verða fyrir þennan mann að fá þá viðurkenningu, sem liggur í prófessorstitlinum, fyrir unnið starf.