15.09.1917
Efri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)
72. mál, hagnýt sálarfræði
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg skal ekki fara að tala um frv. Eins og háttv. þm. vita greiddi jeg atkv. á móti því við síðustu umr. og geri það aftur nú, en að eins vil jeg svara fyrirspurn háttv. þm. Ísaf. (M. T.).
Jeg geng að því sem vísu, að ef frv. þetta verður samþ., þá fái landsstjórnin yfirlýsingu frá dr. phil. Guðmundi Finnbogasyni um, að hann geri enga kröfu til fjárveitingar þeirrar, sem honum er veitt í fjárlögunum, áður en frv. verður staðfest.