06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)
74. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Einar Árnason):
Allsherjarnefndin hefir athugað þetta frv. og leggur til, að það sje samþ., með lítilli viðbót.
Frv. fer fram á, að laun oddvita sjeu aukin um ? verði 30 aur., í stað 20 aur. áður, á höfuð hvert í hreppnum, og dagpeningar sýslunefndarmanna sömuleiðis um ? verði 6 kr. í stað 4 kr. Nefndinni virðist þetta mjög sanngjarnlega í málið farið.
Háttv. þm. Dala. (B. J.) ber fram brtt., þar sem hann vill miða borgunina við verðlagsskrá. Nefndin hefir ekki getað fallist á þessa brtt., fyrst og fremst vegna þess, að henni finst ekki rjett að taka þessa einu stjett sjerstaklega út úr og greiða henni kaup sitt á þennan hátt, og í annan stað er þessi verðlagsskrá ekki eins rjettlát og margur hyggur. Það getur munað miklu á verði meðalálnar í hverri sýslu, jafnvel svo að nærri dregur helmingi. Svo er ekki víst, að saman fari minni störf oddvita í þeirri sýslu, þar sem lægri er meðalalin, og er þetta því ósanngjarnt og ósamrýmanlegt. Nefndin leggur því til, að brtt. verði feld.
Sje jeg svo ekki ástæðu til að fara fleirum orðum um málið.