06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í B-deild Alþingistíðinda. (1119)
74. mál, sveitarstjórnarlög
Hákon Kristófersson:
Þegar jeg sá þetta frv., þá varð mjer á að velta því fyrir mjer, af hvaða toga það gæti verið spunnið. Hvort það væri borið fram eftir áskorun þingmálafunda, eða hvort það væri af innri hvöt flm. (J. J.), að hann kendi meðaumkvunar með þessum mönnum, sem frv. vill bæta launakjörin við, og vildi fara betur með þá. Mjer varð því starsýnna á frv., sem hjer er farið fram á töluverða breytingu. Þótt breytingin sýnist ekki mikil í raun og veru, þá er hún allveruleg, þegar litið er til þess, sem verið er að breyta. Hjer er farið fram á að hækka laun oddvita og sýslunefndarmanna um þriðjung. Jeg vil ekki halda því fram, að þessi hækkun sje ranglát, en jeg veit ekki til þess, að neinar kröfur hafi komið fram um það, að hún sje gerð. Laun oddvita eru nú 2 kr. fyrir hvern tug hreppsbúa. Það má að vísu segja, að það sje ekki mikil borgun. En þess ber að gæta, að oddviti er ekki bundinn við starfa sinn nema í 6 ár. Þó að þeir fái oflitla borgun fyrir starfann, þá skil jeg ekki í, að nokkur maður sjái eftir að leggja það á sig fyrir hreppsfjelag sitt að gegna störfunum þennan tíma. Jeg sje ekki betur en hækkunin komi alleina niður á sveitarfjelaginu, en efnahagur þeirra er jafnaðarlega svo þröngur, að hlífa verður þeim sem mest við útgjaldaauka. Þau eru oft svo fátæk, að þau standast ekki við háum greiðslum. Hvers vegna er þá ekki líka farið fram á að greiða meðnefndarmönnum oddvitanna í hreppsnefndinni kaup? Ef þeir geta unnið sín störf kauplaust, þá finst mjer ekki ósanngjarnt, að oddvitarnir vinni fyrir dálítið minni laun en talist getur full borgun. Jeg er ekki heldur viss um, að laun oddvita sjeu oflág; jeg held, að þeim sje allsæmilega borgað fyrir þá fyrirhöfn, sem þeir láta sveitarfjelögunum í tje, þegar þess er gætt, að þeir geta fengið borgun fyrir þær ferðir, sem þeir fara í þarfir hreppsins. Mjer virðist tæplega rjettmætt að hækka laun oddvitanna, en ganga alveg fram hjá hreppsnefndarmönnunum, Þeir verða einnig að leggja á sig ýmisleg störf í þarfir hreppsfjelaga sinna. Þótt skriftir lendi að vísu að mestu leyti á oddvitanum, þá vinna hinir oft töluvert mikið og fá engin laun fyrir. Og ónot og vanþakklæti, sem hreppsnefndir verða iðulega fyrir, og menn munu reyndar ekki ætlast til að bætt verði með fje, lenda ekkert frekar á oddvitanum en hinum, nema þá ef hann er eini atkvæðamaðurinn í nefndinni.
Þá er í 2. gr. frv. farið fram á að hækka dagpeninga sýslunefndarmanna. Sama er um það að segja og um laun oddvita, að mjer er ekki kunnugt um, að neinar kröfur hafi komið fram í þessa átt, og svo mikið er víst, að ekkert hefir á þeim bólað þar, sem jeg þekki til. Að vísu skal jeg játa það, að þetta er oflítil borgun, sem þessum mönnum er ætluð, ef þeir ættu að sitja á sýslufundi um gagnsmunatíma. En jeg tel víst, að fæstir telji það eftir að sitja á sýslufundum, sem aldrei eru þó oftar en tvisvar á ári, og það á þeim tíma jafnaðarlega, sem jeg verð að álíta, að sje besti tímirin fyrir bændur til að yfirgefa heimili sín. Jeg geri ekki ráð fyrir, að neinn ljeti sig muna þessa hækkun, því að jeg tel víst, að að eins góðir og nýtir menn eigi í hlut, og margur nýtur maður lætur oft meira af hendi rakna fyrir sveitarfjelag sitt en nemur mismuni þeim í kaupgjaldi, sem hjer er farið fram á. Það er annars einkennilegt að vera að gera gangskör að því að breyta lögum, sem í það minsta engin almenn óánægja er með. En þessi breyting hlýtur að hafa frekari breytingar í för með sjer. Þegar ein báran rís, þá er önnur vís, og jeg sje það líka á öðrum frumvörpum, sem á leiðinni eru, hvert stefnir í þessu efni. Önnur vinnulaun verða hækkuð smátt og smátt; má þar t. d. benda á laun jarðamatsmannanna, sem þegar er farið fram á að hækka. Og ómögulega mun hægt að neita því, að ef jarðamatsmenn þurfa að nota sumartíma til matsins, þá er þeim lakar borgað með 5 kr. á dag en sýslunefndarmönnum með 4. Þessi straumur verður ekki stöðvaður, ef honum er eitt sinn hrundið af stað. Jeg verð því á móti frv. í heild sinni. Ekki af því, að jeg álíti, að borgunin, sem það fer fram á, sje ofhá, heldur af því, að jeg er þess vís, að enginn sýslunefndarmaður mun segja af sjer störfunum vegna oflágra launa. Jeg sje því engar ástæður til að gera breytingar, meðan engar almennar óskir eða kröfur koma fram um það. Jeg álít, að það sjeu ekki valdir til starfa þessa aðrir en þeir, er ekki gera launin að neinu aðalatriði. Hvað hreppsnefndaroddvita snertir, þá eru það alt aðrar ástæður en hve þeim er vanborgað, sem eru þess valdandi, að flestir vilja vera lausir við þær stöður, enda til þess valdir jafnaðarlega hinir betri menn, er í ýmsum tilfellum vinna margt og mikið fyrir sín sveitarfjelög án endurgjalds.