06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1338 í B-deild Alþingistíðinda. (1120)
74. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Einar Árnason):
Jeg skal vera mjög stuttorður. Jeg skrifaði ekki hjá mjer neitt úr þessari löngu ræðu háttv. þm. Barð. (H. K.). Mjer er það nóg, að hann lýsti yfir því, að honum þættu laun oddvita og sýslunefndarmanna oflág, en að hann vildi ekki hækka þau fyr en einhver kvartaði. Háttv. þm. (H. K.) mintist á það, hverjar afleiðingar þetta gæti haft fyrir laun opinberra starfsmanna yfirleitt. »Þegar ein báran rís, þá er önnur vís«, sagði hann. En hann hefir orðið helst til síðbær með þessa varkárni. Launahækkun hreppstjóra er nú afgreidd frá deildinni, og mig minnir ekki betur en að háttv. þm. Barð. (H. K.) fylgdi því máli nokkuð eindregið fram. En nú getur hann ekki unnað oddvitunum hins sama. Jeg geri ekki ráð fyrir, að þetta standi í neinu sambandi við það, að háttv. þm. (H. K.) er hreppstjóri, en ekki oddviti. Jeg þekki nokkuð inn á störf oddvita og veit, að þau eru bæði ónæðissöm, vanþakklát og erfið. Það er ekkert ósanngjarnt, að þeim sje borgað sæmilega fyrir það. Þótt öðrum hreppsnefndarmönnum sje ekkert greitt fyrir starfa sinn, þá er þar öðru máli að gegna, því að það er alveg víst, að langmestur hluti nefndarstarfanna lendir á oddvitanum. Má t. d. nefna allar fjárheimtur, sem oft getur verið ærið umfangsmikið starf, og yfir höfuð allar framkvæmdir verður oddvitinn að annast.
Þá virtist mjer háttv. þm. (H. K.) þykja borgun til sýslunefndarmanna vera nóg, og að ekki gerði mikið til, þótt þeir yrðu að borga úr sínum eigin vasa fyrir sveitarfjelögin. Jeg þekki þess dæmi, að sýslunefndarmenn hafa orðið að borga fyrir fæði og húsnæði alt að 6 kr. á dag meðan sýslufundur stóð yfir, og auk þess ferðakostnað heim til sín, fleiri tugi kr, úr eigin vasa. Mjer finst ekkert rjettlæti vera í þessu, og mig stórfurðar á því, að háttv. þm. Barð. (H. K.) skuli telja sanngjarnt að bjóða nokkrum manni þetta. Mjer finst það hreinasta óhæfa.