06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1341 í B-deild Alþingistíðinda. (1122)

74. mál, sveitarstjórnarlög

Þórarinn Jónsson:

Jeg ætla mjer ekki að lengja umræður mikið, að eins drepa á fáein atriði.

Háttv. þm. Barð. (H. K.) sýndi fram á það, og það með rjettu, að það væri rjettlætiskrafa fyrir þessari breytingu. Launin væru óhæfilega lág og það þyrfti að bæta þau upp. En sami þm. (H. K.) benti á, í sambandi við þetta, að sumir sveitarsjóðir væru svo fátækir, að þeir »standi sig ekki við« að bæta við launin. Það er alveg rjett, að flest sveitarfjelög eru fátæk. En það er ekki sagt, að sveitarsjóður tapi neitt á því að greiða oddvitanum hæfileg laun. Þessi lágu laun, sem nú eru greidd, valda því, að oddvitaskifti eru mjög tíð, og þótt nýtur maður fáist í þá stöðu, þá tapast hann strax aftur. Það er áreiðanlega tap fyrir hreppsfjelagið. Enda veit jeg til þess, að sumir hreppar hafa greitt nýtum oddvitum meira en tilsett er, til þess að geta haldið þeim. Störf oddvitans fara stöðugt vaxandi, og kostnaður ávalt nokkur við starfsemi hans. Aðrir hreppsnefndarmenn þurfa miklu minna á sig að leggja og tiltölulega litlu til að kosta. Þeir þurfa að vísu að sitja á hreppsnefndarfundum, að minsta kosti tvisvar á ári, og eyða þannig tíma til þess, en það, sem þeir þurfa að borga fyrir greiða meðan á fundinum stendur, fá þeir vanalegast borgað úr sveitarsjóði. Ekki er heldur hægt að líkja störfum oddvitans við störf hreppstjórans. Starf oddvitans er miklu meira. Þetta er, sem sagt, rjettlætiskrafa, sem frv. fer fram á, en alt um það geri jeg það ekki að neinu kappsmáli, því að það veltur ekki á svo miklu.