08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Fjármálaráðherra (S. E):

Hv. deild er kunnugt um það, hve stuttur tími er síðan jeg tók við embætti. Jeg hefi því ekki getað athugað fjárhag landsins eins ítarlega og æskilegt hefði verið. Jeg vil einnig leyfa mjer að taka fram, að fyrirrennari minn gaf nákvæmt yfirlit yfir fjárhag landsins um leið og hann lagði fjárlagafrv. fyrir þingið. Sje jeg því ekki ástæðu til að drepa á nema fáein atriði.

En fyrst vil jeg leyfa mjer að lýsa yfir því, sem öllum háttv. þingmönnum að vísu er kunnugt, en jeg vildi þó að sæist í Alþingistíðindunum, að hin nýafstöðnu ráðherraskifti stafa ekki af neinum ágreiningi milli hins fráfarandi ráðherra og Sjálfstæðisflokksins. Hins vegar vildi Sjálfstæðisflokkurinn ekki skorast undan þeirri ábyrgð að taka þátt í stjórn landsins á þessum erfiðu tímum.

Samkvæmt landsreikningnum fyrir árið 1914 er tekjuhallinn á því ári kr. 311,307 95

En í landsreikningnum er fært til jafnaðar fje, er lagt var

til landsverslunarinnar — 394,315 85

Er því tekjuhallinn á því ári kr. 705,623 80

Tekjuafgangur á árinu 1915 er samkvæmt landsreikningnum — 129,769 52

Tekjuhalli er því á fjárhagstímabilinu 1914—1915 kr. 575.854 28

En frá honum má aftur draga þá upphæð, er lögð

hefir verið til landsverslunarinnar á því tímabili,

og var hún 1914 kr. 394,315 85

og árið 1915 — 131,645 60 kr. —525,961 45

Eru þá eftir kr. 49,892 83

En samkvæmt svörum stjórnarinnar við athugasemdum

endurskoðenda landsreikninganna virðist mega hækka

þennan tekjuhalla um kr. 21,946 01

er stafa af skakkri sjóðsuppgerð hjá

landsfjehirði 1914, og enn fremur um — 52,680 83

sem stafar af því, að sú upphæð hafði verið tekin út af innieign landsverslunarinnar í Íslandsbanka árið 1915, til afborgunar og vaxtagreiðslu af láni landssjóðs frá 1909, en það var þeim ókunnugt um, er útgjaldahlið landsreikninganna samdi — 74,626 84

og verður tekjuhallinn á fjárhagstímabilinu þá í raun og veru kr.124,519 67

Tekjuafgangur hefir orðið á árinu 1916, eftir því

sem næst verður komist kr. 298,778 00

og virðist þá tekjuafgangur á árunum 1914—1916 vera alls kr. 174,258 33

En þessar tölur skýra að eins frá hag landssjóðs í þrengra skilningi. Landssjóður hefir varið miljónum til vörukaupa og skipa, og hefir þá eins mikla þýðingu að fá að vita, hvað þeim reikningum líður. Í gær gat jeg þess, hver hagur landsverslunarinnar var 1. maí síðastliðinn. Get jeg ekki að svo stöddu gefið frekari upplýsingar um það atriði. En þó get jeg bætt því við, að landssjóður hefir orðið að binda sig mjög miklum lánum. Víxlar hafa verið teknir til skipakaupa, er nema ca. kr,2,360,000, og verslunarvíxlar eru að upphæð um kr. 2,800,000. Auk þess hefir verið tekið lán í Kaupmannahöfn, kr. 3,500,000. Á móti þessum lánum — hjer eru ekki gömlu föstu lánin — eru vitanlega miklar eignir, 3 skip, Villemoes, Borg og Sterling, og miklar birgðir af verslunarvörum, en hve miklar hefi jeg ekki enn getað rannsakað. En þessar skuldir, þótt eignir sjeu miklar á móti, sýna, að landið hefir reynt töluvert á lánstraust sitt, og eins hitt, að skuldum þessum er mjög illa fyrir komið. Og þegar litið er á fjárlagafrv. fyrir árin 1918—1919, sem nú liggur fyrir háttv. deild, má búast við alt að einnar miljónar kr. tekjuhalla. Jeg segi þetta ekki til þess að mála ástandið með ofsvörtum litum, enda býst jeg við, að þótt fjárhagur landssjóðs sje þröngur, þá hafi landið grætt á ófriðarárunum. Jeg tek þetta að eins fram til að færa mönnum sönnur á, að ástæða er til að fara eins varlega á ýmsum sviðum og frekast er unt. Hins vegar hefi jeg ekki, á þessu stigi málsins, sjeð mjer fært að bera fram brtt. í þá átt að lækka útgjöldin, veit, að slíkar tillögur mundu engan byr fá, því að flestir liðirnir eru nú fastráðnir, en þær breytingartillögur, sem komið hafa fram hjer í háttv. deild nú, skifta ekki svo máli, að þær hafi, hvernig sem um þær fer, veruleg áhrif á hag landssjóðs. Og sje jeg ekki ástæðu til að eyða tíma í að tala um hverja breytingartillögu fyrir sig, en mun með atkvæði minu sýna afstöðu mína til þeirra.

En það vil jeg taka fram, eins og jeg vjek að áðan, að mjer virðist skuldum landssjóðs ekki vel fyrir komið; mjer virðist hann vera ofmikið bundinn við víxla og dýr hlaupandi lán, og mjer virðist hann, eins og stendur, fullbundinn við bankana hjer. Að því ber og að gæta, að ef þrengir að atvinnuvegum, sjerstaklega sjávarútveginum, þá eiga bankarnir örðugra aðstöðu, og ef landssjóður bindur bankana ofmikið, þá þrengja þeir að kosti einstaklinganna. Mjer virðist því, að landssjóður verði að reyna að fá sjer stórt lán með hagkvæmum kjörum, ekki að eins til að losa sig við víxlana, heldur einnig til að tryggja framtíð landsins á þessum örðuga tíma. Að þessu vil jeg reyna að vinna af fremsta megni, en hvernig það tekst veit jeg ekki.