04.09.1917
Neðri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (1142)
74. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Einar Árnason):
Þetta frv. er komið aftur frá háttv. Ed., með þeirri breytingu, að afnumið er hámark oddvitalaunanna. Allsherjamefnd þessarar deildar sjer ekki ástæðu til að gera ágreining út af þessu atriði, og leggur því til, að frv. verði samþ., eins og það er nú.