25.07.1917
Neðri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1147)
76. mál, mjólkursala í Reykjavík
Jörundur Brynjólfsson:
Jeg gat þess áðan, að þótt jeg væri ekki alls kostar ánægður með þetta frv., þá þætti mjer það samt að ýmsu leyti til bóta. En við einstakar greinar þess, sem mjer þykja athugaverðar, geri jeg ef til vill brtt. við 2. umr.