08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (115)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Jeg skal ekki lengja ræður mjög mikið, enda má það ekki, ef háttv. deild á að ljúka 2. umræðu í dag, enda er jeg því ekki vanur.

Jeg vildi sjerstaklega minnast á 13. gr. og 16. gr. fjárlaganna.

Um brtt hv. fjárveitinganefndar við 13. gr. vil jeg taka fram, að þær eru ekki neitt stórvægilegar. Jeg hefi í flýti farið yfir þær, og mjer finnast þær stiltar við hóf, og ekki hægt að komast af með minna fje. Sjerstaklega vil jeg taka það fram, að hækkun á fje til vitamálastjórans er á rökum bygð, og vænti jeg því, að það nái fram að ganga.

Jeg skal ekki blanda mjer í deiluna um Flensborgarskólann — það stendur öðrum nær — en jeg man ekki eftir því, að það væru færð nokkur rök fyrir því í hv. Nd., að hjer væri um landsskóla að ræða.

Við 16. gr. hefir sú breyting komið fram, að styrkurinn til húsmæðranámsins — undirbúningur undir forstöðu skólans — verði veittur síðara árið, og sje jeg ekki betur en að við það megi una, enda hefir hv. nefnd ekki lagt á móti því.

Um 45. brtt. á þgskj. 811 hefir þess verið getið, að hún sje að eins orðabreyting, og eftir mínum skilningi er þar ekki heldur um neina verulega efnisbreytingu að ræða, að eins bætt við einu atriði um tilsögn í endurskoðun reikninga.

Mun jeg því greiða atkvæði með brtt. þessari.

Þá er brtt. 811,46., um erindreka Fiskifjelagsins. Í stjórnarfrv. voru áætlaðar 4000 kr., en fjárveitinganefnd Nd. bar fram brtt. um hækkun upp í 12000 kr. Var það felt með litlum atkvæðamun.

Jeg lít nú svo á, að full ástæða sje og brýn nauðsyn til að styðja fjelag þetta með erindreka, sjerstaklega til Vesturheims, þar sem miklar líkur eru til, að opna megi góðan markað. Og þegar þess er gætt, að 12000 kr. eru litlu notadrýgri nú en 4000 kr. áður, vegna dýrtíðarinnar, þá álít jeg varhugavert að fella þessa till. nefndarinnar, þótt betra væri en ekki að samþ. brtt. háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) á þgskj. 854, um að styrkur þessi verði 8000 kr.

Jeg vil því mæla með þessari brtt. nefndarinnar, því að hjer er að ræða um starf, sem er vandasamt og erfitt, en hefir verið illa launað, eins og víðar hefir viljað við brenna.

Þá er till. á þgskj. 833, frá háttv. 2. þm. G. K. (K. D.), sem fer fram á, að veita fyrv. vitaverði Jóni Helgasyni 500 kr. styrk hvort ár. Það má ef til vill segja, að þetta sje gustukastyrkur. Slík hjálp hefir nú samt oft verið veitt áður, og jeg þykist vita, að þetta sje góður drengur, sem þreyttur er orðinn á þörfum störfum í þjónustu landsins. Þykir mjer því vel sæma að veita honum styrk þennan.

Vil jeg svo enda mál mitt, á líkan hátt og aðrir, með því, að jeg muni sýna afstöðu mína til einstakra liða með atkv. mínu.