26.07.1917
Neðri deild: 18. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1363 í B-deild Alþingistíðinda. (1175)
80. mál, notkun bifreiða
Pjetur Þórðarson:
Það var óþörf tilgáta hjá háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) að núa mjer því um nasir, að jeg væri gerður út af bifreiðarfjelögum hjer. Jeg veit tæplega, hvort þau eru til hjer, og því síður er jeg í kynni við bifreiðaeigendur. En hitt er rjett, að jeg hefi leitað upplýsinga hjá einstökum bifreiðastjórum, af þeirri ástæðu, að jeg vil ekki segja af eða á um nokkurn hlut, nema jeg hafi kynt mjer málavexti.
Það er og ekki rjett hjá háttv. flm. (E. A.), að mjer sje ekki kunnugt um það, hvern hraða bifreiðar megi hafa utanbæjar. Jeg held og fast við það, að það er ekki hinn lögákveðni hraði, sem þarf að óttast, heldur hitt, ef farið er út fyrir hann.
En þar sem háttv. 1. þm. Árn. (S.S.) benti á ýmislegt fleira, sem athuga bæri í sambandi við frv., þá skal jeg vera manna fyrstur til þess að fylgja honum í því, sem verulega horfir til bóta um bifreiðar, og jafnvel að því að afnema þær með öllu, ef gild rök eru fyrir hendi. En jeg álít rjett að ganga ekki lengra í því að setja þessi takmörk en sanngjarnt er; þá er betra að banna bifreiðarnar með öllu.
Jeg hefi, satt að segja, ekki næga þekkingu til þess að segja, hver vandkvæði eru á að útvega mæla. En örðugleikar geta þó verið á því að útvega þá fyrir þann tíma, sem settur er í frv.
Að því er snertir óþægindin af næturferðum bifreiðanna, þá skal jeg fús til þess að vera með að stytta þær, ef mjer verður sýnt fram á, að það sje nauðsynlegt, þó svo, að takmarkanirnar sjeu ekki svo miklar, að bifreiðunum sje gert ómögulegt að ganga.
Um slys held jeg að sje hægt að sýna fram á, að fleiri hafa þau hlotist af hjólhestum og hestum.
Með þessum athugasemdum vil jeg hafa fullvissað háttv. þm. Árn. (S. S.) um það, að jeg er ekki gerður út af bifreiðarfjelögum nje einstökum bifreiðareigendum.