08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (119)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Framsm. fjárveitinganefndar (Eggert Pálsson):

Jeg hefi tiltölulega litlu að svara, því að fáir hafa tekið til máls, og till. nefndarinnar litlum mótblæstri mætt. Jeg þarf því ekki mikið að verja fyrir hennar hönd. En eðlilegt er, að menn hafi staðið upp til þess að mæla með brtt. sínum. Skal jeg nú minnast á þær í þeirri röð, sem formælendur þeirra tóku til máls.

Fyrstur var háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.). Um brtt. hans á þgskj. 831 og 833 þarf ekki að ræða frekar, þar sem þær eru teknar aftur. Um brtt. á þgskj. 832 er ekkert að segja heldur, því að um hana er engin ágreiningur. Þá er eftir brtt. hans á þgskj. 838, um að hækka skáldastyrkinn. Skýring hans var sú, að hækka bæri styrkinn við Guðm. skáld Guðmundsson með tilliti til þess, að hækkað er við Einar skáld Hjörleifsson.

Guðm. Guðmundsson er að vísu þaðan upp runninn, að jeg stend mig illa við að mæla á móti honum, en þó álít jeg, að samanburður geti ekki átt sjer stað á milli þessara tveggja manna. Einar Hjörleifsson er orðinn aldraður maður, og þótt kraftar hans sjeu enn óskertir til skáldskapar og geti enn varað langa tíð, þá hljóta þeir að fara þverrandi á öðrum sviðum, er að því stefna að bjarga sjer. En Guðm. Guðmundsson stendur upp á sitt besta til hvers sem vera skal.

Skáldskaparstefnan verður líka að koma til athugunar. Einar er söguskáld, en Guðm. ljóðskáld. Nú er það engin óvissa, hvort betur muni borga sig. Söguskáldið hefir ekkert nema ritlaunin, sem lág hljóta að verða hjer í fámenninu. Ljóðskáldið getur aftur á móti unnið sjer inn peninga á ýmsan hátt með gáfu sinni. Þess eru líka mörg dæmi, að hagyrðingar hafa aflað sjer fjár, við ýms tækifæri, með ljóðum sínum. Jeg get því ekki sjeð, að þessir menn þurfi að fylgjast að við styrkveitinguna.

Þá er sami háttv. þm. (K. D.) óánægður með till. nefndarinnar um Flensborgarskólann; sömuleiðis hefir háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) fundið hvöt hjá sjer til þess að verja skólann gegn þessari árás, sem svo er kölluð.

En þetta er alls ekki árás, heldur miðar það til þess að tryggja skólann sem best. Og jeg lít svo á, að þeir, sem ekki geta verið með till. þessari, beri ekki hag skólans fyrir brjósti, heldur hag Hafnarfjarðar og Gullbringusýslu.

Ef þetta er borið saman við það, sem venja er með aðra kaupstaðarskóla, þá getur tillagið alls ekki kallast hátt.

Eins og gefur að skilja stendur þessi till. nefndarinnar í sambandi við það, að þessi hjeruð hafa skólans mest not.

Ef athugaðar eru skýrslur skólans, kemur það í ljós, að skólaárið 1916— 1917 hafa sótt hann 19 nemendur úr Hafnarfirði og 7 úr Kjósar- og Gullbringusýslu af 57 nemendum alls. Tæpur helmingur allra nemenda hans hefir því verið úr þessum hjeruðum.

Háttv. þingm. (K. D.) benti á það, að Kjósarsýsla ætti eins að styrkja skólann og Gullbringusýsla. En eftir skólaskýrslunni hefir ekki verið nema einn einasti nemandi úr Kjósarsýslu, og verður því Gullbringusýsla frekar skylduð til að leggja eitthvað af mörkum.

Því var haldið fram af sama háttv. þm., og líka af háttv. 4. landsk. þm. (G. G.), að líta bæri sömu augum á Flensborgarskólann og Akureyrarskólann. En það er ekki rjett, vegna þess, að hjer er annar skóli, gagnfræðadeild Mentaskólans, sem samstæður er gagnfræðaskólanum á Akureyri. Og jeg er ekki í neinum vafa um, að ef landið hefði ótakmörkuð eignarforráð yfir Flensborgarskólanum, og svo væri álitið, að hann væri samstæður gagnfræðadeildinni hjer, þá mundi ekki þessum tveimur skólum vera haldið uppi til lengdar, hvorum við hliðina á öðrum.

Það ber þess vegna ekki að skoða Flensborgarskóla sem fullkominn landsskóla, eins og t. d. Akureyrarskólann eða gagnfræðadeild Mentaskólans. Því að ef skoða bæri hann sem slíkan, þá lýsti það fávisku af hálfu þings og stjórnar að halda uppi tveim samskonar skólum, hvorum við annars hlið. Enda vitum vjer, að Fiensborgarskóli er stofnaður með gömlu gjafabrjefi, sem ekki er hægt að breyta. Jeg get ekki skilið, að þessar tillögur fjárveitinganefndar sjeu tilræði við skólann. Nefndin hefir litið svo á, að forstöðumönnum skólans mætti einmitt þykja vænt um þær, og að Hafnarfjörður og Gullbringusýsla mættu sjá sóma sinn í að styrkja lítið eitt þennan myndarlega skóla.

Um brtt. háttv. þingm. Ísaf. (M. T) er það eitt að segja, að þar er ekki um annað að ræða, sem á milli ber, en þessa 200 kr. hækkun til húsmæðraskólans á Ísafirði, og gefur að skilja, að jeg get ekki sem framsögumaður lagt krafta mína fram til þess að berjast um jafnlitla fjárhæð, — slíkt mætti skoða sem að deila um keisarans skegg. En fjárveitinganefndin verður samt að standa þar við sínar gerðir. Hún leit svo á, að hjer væri ekki um brýna nauðsyn að ræða, og ræða háttv. flutnm. (M. T.) hefir ekki sannfært mig um hið gagnstæða.

Hann lýsti því, hversu mikið gagn væri að þessum skóla og hversu mikils góðs mætti vænta af honum í framtíðinni. Og efast jeg ekki um, að sú lýsing sje rjett. En þess ber þó jafnan að gæta, að oft er lítt mark takandi á meðmælum manna með sínum eigin málstað; þá er oftast alt gott og blessað. (M. T.: Jeg skal muna eftir háttv. framsm. (E. P.), er hann kemur með till. frá sjálfum sjer).

Þá skal jeg víkja mjer að háttv. 4. landsk. þm. (G. G.).

Orðum hans um Flensborgarskólann hefi jeg þegar svarað.

Þá lagði háttv. þingm. (G. G.) það til, að 15. gr. 20. d. — 40000 kr. til listasafnshússins — falli burt, og verð jeg að segja, að jeg er ekki algerlega mótfallinn þeirri tillögu fyrir mitt leyti, og mundi hiklaust greiða henni atkvæði mitt, ef ekki væri þegar búið að eyða miklu fje til þessara efna. Því að þegar þessum litlafingri var smeygt inn í fjárlögin, að taka á móti og flytja heim listasafn Einars Jónssonar, var jeg á móti því. En það reynist hjer sem annars staðar, að þegar búið er að segja a, þá verður líka að segja b. Nú hafa verið lagðar 19,400 kr. til þessa húss frá einstökum mönnum, og hver veit, nema þessar 40,000 kr. sjeu að meira eða minna leyti bundnar? Vjer getum eins vel gert ráð fyrir því. Því að, eins og háttv. þingm. (G. G.) man, var upphaflega gert ráð fyrir þessari fjárveitingu í fjáraukalögunum. Og menn gera sjer oft von um, að þeir megi treysta því, sem þar stendur. Það gæti þess vegna komið sjer bagalega, ef þessi liður yrði feldur nú. — En samt skal jeg geta þess, að þetta er að eins ágiskun mín. — En jeg býst við, að reyndin verði sú, eins og háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) gat til, að þó að þessi liður yrði feldur að þessu sinni, þá muni hann ganga aftur, og þá finst mjer varnaglinn í till. háttv. þingm. Snæf. (H. St.) vera nægilegur.

Þá gat sami hv. þm. (G. G.) um fjárveitinguna til fiskierindrekans. Í brtt. sinni fer hann fram á, að þessum manni sjeu veittar 8000 kr. hvort árið. Hann kannast samt við það, eins og nefndin gerði líka ráð fyrir, að 8000 kr. mundu ekki nægja til þess, að þessi maður geti lifað sómasamlegu lífi, tekist á hendur ferðalög og rekið vel starf sitt erlendis. En fyrir honum vakir hitt, að viðbótarinnar megi afla á annan hátt. Og í því sambandi benti hann á það, að um stutt skeið hefði erindreki samvinnufjelaganna verið fyrir landbúnaðinn, og hefði verið kostaður af samvinnufjelögunum. En jeg álít, að hvort sem um samvinnufjelög í land- eða sjávarsveitum er að ræða, þá sje í eðli sínu rangt, að þau kosti manninn af sínu eigin fje. Því að gagnið, sem þessir menn kunna að vinna, rennur ekki einvörðungu til þessara fjelaga, heldur verður það alþjóðargagn. Þess vegna eiga þessir menn að vera kostaðir af alþjóð. Enda mundi þetta alt koma í sama stað niður, að því er til landssjóðs kemur. Því að ef Fiskifjelagið greiddi erindrekanum viðbótina, mundi afleiðingin af því verða sú, að landssjóður yrði að auka tillag sitt til Fiskifjelagsins að sama skapi. Því að síst mun fjelagi þessu vera ætlað tillag um of í fjárlögunum; að minsta kosti mundi fjelagið ekki vilja kannast við það.

Háttv. þingm. Snæf. (H. St.) þarf jeg fáu að svara. Brtt. hans á þingskj. 840 og 841 hefir fjárveitinganefndin gefið meðmæli. Það er að eins brtt. hans á þingskj. 842, um að hækka styrkinn til Guðmundar Hjaltasonar, sem nefndin hefir ekki getað tjáð sig meðmælta. Þessi hækkun er vitanlega ekki mikil. En þrátt fyrir það, að nefndin viðurkennir þennan mann góðan og nýtan á sínu sviði, þá hefir hún samt ekki getað hallast að þessari hækkun. Jeg hygg líka, að það sje gagnstætt hugsunarhætti þessa mæta manns, að landssjóður ausi út styrkhækkun til hans. 800 kr. eru að vísu ekki mikil fjárhæð; en það er samt töluvert fje í samanburði við þann styrk, sem hann byrjaði með og var þá þakklátur fyrir. Mjer er illa við að mæla á móti þessari hækkun, því að hlutaðeigandinn er þarfur maður og vel hugsandi og hefir gert mikið gagn. En jeg hygg samt, að hann sje ekki óánægður með þann styrk, sem hann hefir haft, og því síður með þessar 800 kr., sem eru þó 200 kr. hærra en eru í núgildandi fjárlögum. Það er lögmál lífsins, að þeir eru nægjusamastir, sem geta komist af með lítið.

Hæstv. atvinnumálaráðherra fann að því, að nefndin hefði felt niður styrkinn til Frímanns Arngrímssonar síðara árið. Jeg skal ekki deila um það. Jeg lít svo á, að vel kunni að vera þörf á styrk til þessa manns. En hins vegar get jeg ekki gert mjer von um mikinn árangur af störfum hans, þó að liðurinn hljómi vel í eyrum.