08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (1210)

92. mál, stofnun alþýðuskóla á Eiðum

Björn Stefánsson:

Út af umræðum um þetta mál við 2. umr., að hve miklu leyti skyldi stunda jarðrækt á þessum fyrirhuguðu námsskeiðum, vil jeg taka það fram, að það, sem fremur öllu öðru hefir vakað fyrir mjer, er að leggja stund á jarðrækt fremur öllu öðru á námsskeiðunum. Jeg veit, að fjöldi manna fyrir austan er óánægður með það, að búnaðarskólinn á Eiðum leggist niður, og sættir sig því að eins við það, að þessi námsskeið verði haldin, þau höfð sem fullkomnust, og að á þeim verði aðallega lögð stund á jarðrækt.

Úr því að búnaðarnámsskeiðin, sem eiga ekki að standa yfir nema 3—4 vikur haust og vor, eru svona stutt, er þýðingarlaust að fara að leggja þar stund á margar námsgreinar, enda hætt við, að því verði þá haldið fram, að þýðingarlaust sje að hafa margt í takinu svo stuttan tíma, og að betra væri að sleppa einhverju alveg en að vera að káka við margt, eins og í sjálfu sjer er alveg rjett, en jeg vil ekki eiga á hættu, að það verði kann ske jarðræktin, sem verður slept.

Þess vegna vil jeg fækka þessum greinum og hefi farið fram á það með brtt á þgskj. 334, til þess að jarðræktin fari ekki alveg út um þúfur, því að mínu áliti á það að vera aðaltilgangur þessara búnaðarnámsskeiða að tryggja það, að kensla í jarðrækt leggist ekki alveg niður á Austurlandi.