26.07.1917
Neðri deild: 18. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)
93. mál, eignarnám eða leiga á brauðgerðarhús o.fl.
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Jeg tel ekki þörf á að fara mörgum orðum um þetta frv. nú, enda get jeg vísað til greinargerðarinnar fyrir frv. Á svona tímum, eins og nú eru, veit enginn, hvað fyrir kann að koma, og því er sjálfsagt að vera við öllu búinn. Það er auðvitað mál, að slík heimild sem þessi verður ekki notuð nema brýn nauðsyn beri til.
Jeg vona, að frv. fái að ganga í gegnum deildina hindrunarlaust.