08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (123)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Frsm. fjárhagsnefndar (Halldór Steinsson):
Jeg veit ekki, hvort það er heppilegt að hraða fjárlögunum eins mikið og hjer er gert. Með þessu móti er ekki unt fyrir þingmenn að fá tíma til þess að átta sig á brtt. þeim, er fram koma, og mjer eða fjárhagsnefndinni hefir ekki unnist neinn tími til að athuga tillögu þá, er hjer liggur fyrir um tekjubálkinn. Jeg verð því að geyma mjer rjett til að tala um hana síðar.
Annars væri æskilegt, að málið væri tekið út af dagskrá eða fundi frestað. (Margir þingmenn: Sjálfsagt að fresta fundi).