01.08.1917
Neðri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1396 í B-deild Alþingistíðinda. (1233)
93. mál, eignarnám eða leiga á brauðgerðarhús o.fl.
Benedikt Sveinsson:
Jeg get engan veginn fallist á viðaukatill. á þgskj. 232. Hún gerir sem sje ráð fyrir því, að bakarar, sem sýnt hafa þrjósku, sitji fyrir og fái atvinnu við brauðgerðarhús þau, er tekin hafa verið af þeim. Þetta frv. er einmitt í því skyni flutt að aftra því, að bakarar sem sýnt hafa þverúð í viðskiftum við almenning, beiti sjer þannig framvegis. Frv. á að vera trygging í þá átt. Væntanlega þarf ekki að nota þessa heimild um eignarnám, ef frv. verður samþ. óbreytt, því að bakararnir sjá þá að sjer í tíma, en ef slakað verður til, þá er miklu hættara við, að bakararnir verði óprútnir og jafnvel »spekúleri« í því að láta taka af sjer húsin, til þess á síðan að fá ágætt kaup hjá landssjóði við sömu atvinnu.
Jeg vil því alvarlega vara menn við því að láta ginnast á þessari viðaukatill.