01.08.1917
Neðri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1234)
93. mál, eignarnám eða leiga á brauðgerðarhús o.fl.
Bjarni Jónsson:
Menn geta sjeð af ummælum síðasta ræðumanns (B. Sv.), sem er bæjarstjórnarmaður, hvort jeg hefi ekki haft rjett fyrir mjer í því, sem jeg hjelt fram við 2. umr. Menn sjá nú, hverrar miskunnar bökurum er að vænta, þegar tekin hefir verið af þeim atvinna þeirra að þeim nauðugum. Þeir eiga að verða alveg rjettlausir; þeim á að kasta út á götur, en hinir og þessir eiga að vinna þeirra verk, á meðan bæjarstjórnin er að brjóta og skemma fyrir þeim, en þegar bæjarstjórn þykist hafa leikið sjer nóg og ef til vill hefir flæmt alla frá viðskiftunum, þá eiga bakararnir að taka við molunum. Jeg minni að eins á þetta út af brtt. minni, sem feld var við 2. umr., en samt er ekki enn úr sögunni, með því að líklegt er, að Ed, taki hana upp.
Hitt er satt, að brtt. á þgskj. 233 bætir nokkuð úr skák. En háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) láðist þó að geta þess hvaðan hann hefir þessa mannúð, sem sje frá mjer, og segi jeg það, honum til lofs, að hafa farið að bendingum, sem jeg ljet í tje.
Það er einkanlega eitt í, þessu máli, sem mjer þykir á bresta, það að bakarar sjeu svo miklu verri en aðrir menn að sjerstakar varúðarreglur þurfi við þá um fram aðra. Jeg hefi ekki heyrt nje sjeð um það annað en fáeinar blaðagreinar, hverja annari vitlausari, þar sem sagt er, að bakarar græði 100 kr. á hverjum sekk; en slík ummæli eru bygð á algerðu þekkingarleysi, eins og hver getur sjeð, sem greinarnar les. Jeg vil aftra því, að nokkur standi varnarlaus uppi gegn slíkum stofnunum, sem bæjarstjórnir og hreppsnefndir eru. Jeg hefi sjeð bústna hreppanefndaroddvita koma til aumingja og gamalla fáráðlinga og varpa þeim út á gaddinn. En jeg vil ekki, að hið íslenska ríki þoli, að nokkuð þvílíkt geti átt sjer stað.
Jeg mun nú fylgja. þessari brtt, á þgskj. 232, en hefi mælt þessi orð til þess að sýna, að brtt. mín við 2 umr. var ekki ástæðulaus.
Ef til vill ætti það við að taka frv. út af dagskrá, til þess að hægt sje að breyta því svo, að heimilað sje að taka námi til leigu, ef eigendur vilja það heldur, en ella eignarnámi. Þannig mætti bjarga málinu, án þess að það verði að voða. Jeg vil enn benda á það, hve hættulegt það getur verið atvinnurekendum að sleppa atvinnu sinni þótt ekki væri lengur en um eitt ár, en taka svo við aftur, þegar öll skilyrði eru breytt orðin og viðskiptavinir hans ef til vill flæmdir burt. Þetta má öllum vera kunnugt, sem nokkuð þekkja til viðskipta. Jeg vænti þess því, að frv. verði tekið út af dagskrá; jeg hafði ekki tíma til þess að koma fram með brtt. í dag, mundi ekki heldur, að málið væri á dagskrá. En nú get jeg haft til brtt. í kvöld, svo að frv. nái að komast á dagskrá aftur á morgun.