08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (127)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Jóhannes Jóhannesson:
Jeg á brtt. á þingskjali 876, sem fer í öfuga átt við allar hinar brtt. Hún miðar nefnilega ekki til þess að auka útgjöld landssjóðs, heldur hins gagnstæða, að auka tekjurnar, og það ekki að óverulegum mun.
Skal jeg nú í fám orðum gera grein fyrir því, hvernig á henni stendur og málinu er varið.
Árið 1904 fjekk Valdemar Petersen, stórkaupmaður í Kaupmannahöfn, yfirlýsingu frá stjórnarráði Íslands um það, að tilbúningur hjer á landi á »bitteressens«, sem hann kallar »Kínalífselixír« kæmi ekki í bága við lögin frá 12. jan. 1900, um bann gegn tilbúningi áfengra drykkja. Bjó hann síðan til heilmikið af elixír þessum hjer á landi, til þess að komast hjá að greiða aðflutningsgjald af honum, sem þá var búið að leggja á innflutning allskonar bittervökva, en greiddi auðvitað aðflutningsgjald af vínanda þeim, sem notaður er í elixírinn.
Með lögum frá 16. nóvember 1907 var lagt sjerstakt gjald á allskonar bittergerð og þau lög látin gilda aftur fyrir sig, þannig að þau náðu einnig til þess bittervökva, sem búið var að búa til áður en þau voru sett.
Eftir þessu var það samróma álit þings og stjórnar, að Kínalífselixír V. Petersens bæri eigi að telja til áfengis, og að lög þau, er gilda um tilbúning og sölu áfengis, næðu ekki til hans, enda var hann seldur af kaupmönnum um land alt, hvort sem þeir höfðu áfengissöluleyfi eða ekki, fram til ársloka 1915, og fann ekki nokkur maður að, því að elixírinn hefir aldrei, svo að jeg viti, verið notaður sem áfengi. Það enda ekki hægt, af því að í honum er svo mikið af öðrum efnum, einkum niðurhreinsandi, að ekki er hægt að neyta hans óblandaðs nema í dropatali, og sje hann blandaður með vatni eða öðru en áfengi, verður blandan að vera svo dauf, til þess að hún sje drekkandi, að áfengisins, sem í elixírnum er, gætir alls ekki.
Elixír þessi hefir verið mikið notaður sem læknislyf hjer á landi, og mun alment höfð trú á honum sem slíku.
Tollurinn af honum er ? krónu af hverri 3/16 líterflösku og fellur í gjalddaga um leið og elixírinn er tekinn úr tollgæslu, sem hann er í, undir umsjón lögreglustjórans á Seyðisfirði, og hefir landssjóður haft um 5000 kr. hag á sölu hans árlega undanfarin ár.
Með úrskurði, dagsettum 17. nóvember 1915, á athugasemd við bittergjaldsreikning tjeðs lögreglustjóra fyrir árið 1914, hefir stjórnarráðið talið sölu á elixír þessum óheimila kaupmönnum og öðrum, eftir 1. gr. laga 30. júlí 1909 (bannlaganna), og var því allri sölu á honum hætt í árslok 1915. Enn fremur lítur stjórnarráðið svo á, að V. Petersen beri að greiða toll af elixírnum, er hann verði fluttur af landi burt.
Þar sem V. Petersen hafði fengið stjórnarráðsyfirlýsingu um það, að tilbúningur elixírsins hjer á landi kæmi ekki í bága við bannlögin gegn tilbúningi áfengis, frá 1900, áður en hann bjó til elixírinn, og þingið hafði staðfest þennan skilning stjórnarráðsins með því að tolla elixírinn, og þar sem elixírinn auk þess fram til ársloka 1915 var seldur átölulaust, sem hver önnur vara, þá verður ekki annað sjeð en að Petersen sje nú mjög hart leikinn, þar sem sala þeirra hjer um bil 60000 3/16 líterflaska, sem hann á enn óseldar hjer á landi, er algerlega bönnuð. Elixírinn er leyndarlyf, og því ekki tekinn upp í lyfjaskrána. Geta læknar og lyfsalar því ekki heldur selt hann.
Þá þykist allur almenningur og hart leikinn, er sala elixírsins er bönnuð. Eins og jeg gat um áður hafa menn alment trú á honum sem læknislyfi, þótt leyndarlyf sje. Um það get jeg borið; því að síðan salan var bönnuð hafa margir hvaðanæfa af landinu snúið sjer til mín, sem lögreglustjóra á Seyðisfirði, um undanþágu frá sölubanninu, og í fyrra sumar sneri bóndi úr Árnessýslu sjer til stjórnarráðsins og bað um undanþágu, en allir hafa fengið afsvar. Tjeður bóndi bað um 10—20 flöskur handa syni sínum magaveikum. Segir hann elixír þennan hið eina, sem hafi bætt hann, og hafi drengurinn þó áður verið búinn að leita margra lækna og vera lengi undir læknishendi, en árangurslaust.
Loks verður landssjóður hart úti, ef sölubanninu verður fram haldið.
Það borgar sig nefnilega ekki fyrir V. Petersen — að minsta kosti ekki meðan farmgjöldin eru há — að flytja elixírinn út og greiða af honum tollinn. Verði sölubanninu því haldið áfram, neyðist hann til að hella elixírnum niður, því að það er dýrt fyrir hann að leigja hús árum saman til að geyma elixírinn í, auk ábyrgðargjalds og umsjónarmannslauna. En um leið og elixírnum er helt niður missir landssjóður 40000 kr. spón úr askinum sínum, sem hann á löglegt tilkall til.
Til þess að bæta úr því harðræði, sem V. Petersen og öllum almenningi er sýnt, og til þess að firra landssjóð 40 þús. kr. tekjumissi, hefi jeg borið fram brtt. á þingskjali 876.
Vænti jeg, að ekki einasta háttv. deild, heldur alt þingið, fallist á, að jeg flyt hjer rjett og sanngjarnt mál, er málavextir eru orðnir því kunnir, og að það væri hreinasta fjarstæða — að jeg viðhafi ekki sterkari orð — að hafna nú á tímum tekjuauka þeim, sem hjer er í boði.