02.08.1917
Neðri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)

111. mál, friðunartími hreindýra

Flm:

(Jón Jónsson): Þetta frv. er komið fram af því, að nú er útrunninn friðunartími hreindýra. Jeg lít svo á, að ekki geti komið til mála að láta friðunarlögin falla úr gildi, án þess að framlengja þau. Jeg sting upp á, að frv. sje látið ganga nefndarlaust gegnum þingið.