08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (128)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Frsm. fjárhagsnefndar (Halldór Steinsson):

Háttv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) hefir gert grein fyrir till. sinni um að leyfa að selja Kínalífselixír og afla landssjóði með því 20 þús. kr. tekna á ári. Það má segja um Kínalífselixírinn, að hann sje meinlítill og gagnslítill, en það er alkunna, að alþýða manna hjer á landi hefir talsverða trú á honum, og að trúin getur flutt fjöll. Jeg hygg því, að notkun elixírsins gæti í einstöku tilfellum orðið til bóta, ef hann er rjett notaður. En fá meðul eru svo meinlaus, að ekki geti orðið til skaða, ef þau eru misbrúkuð. Það hefði því verið eðlilegasta leiðin að heimila lyfsölum að hafa elixírinn til sölu, undir umsjón lækna, en að fleygja honum út um landið eftirlitslaust tel jeg alveg ófært.

Auk þess er það eftir mínu viti brot á bannlögunum, því að í elixírnum eru 50% af alkóhóli, en slíka vökva má ekki selja án lyfseðla, samkvæmt ákvæðum bannlaganna.

Og þótt það sje bagalegt fyrir mann þennan að liggja með birgðirnar hjer á landi, og hins vegar sjeu margir, sem neyta vilja elixírsins, þá sje jeg samt ekki fært að fara eftir till. þessari, þar sem hún brýtur í bág við gildandi lög.