14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (1302)

112. mál, herpinótaveiði á fjörum inn úr Húnaflóa

Benedikt Sveinsson:

Hæstv. forsætisráðherra hefir lýst yfir því, að frv. sje illa orðað, og það stoðar lítt að vísa til annara laga, þótt þau sjeu líka illa orðuð. Jeg held, að rjettara væri að gera bragarbót og taka málið út af dagskrá, svo að nefndin gæti lagað það. (M. P.: Það má eins gera það við 3. umr.). Annars sje jeg ekki nauðsyn þessa máls, því að það gægist út úr umræðunum, að veiði er harla lítil á þessu svæði, nema af íslenskum skipum, og hvað viðvíkur friðun á Húnafirði, eða í innanverðum flóanum milli Vatnsness og Skaga, þá er þar ekki um aðra útgerð að ræða úr landi en nokkur síldarlagnet, sem Blönduóssbúar kunna að eiga. Það er því að eins með þessu verið að friða nokkrar síldartorfur, sem leika sjer í landhelgi fáeina daga og fara svo út til hafs aftur.