14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (1303)
112. mál, herpinótaveiði á fjörum inn úr Húnaflóa
Frsm. (Matthías Ólafsson):
Jeg er hissa, að nokkrum skuli vera í nöp við þetta frv. Að orðalag þess sje óskýrt get jeg ekki fallist á, og jeg sje ekki, að nefndin gæti bætt það neitt, þótt því yrði vísað til hennar aftur. Það er auðvitað, að sýslunefndir geta ekki gert samþyktir um veiði annarsstaðar en innan landhelgis sinnar eigin sýslu. Það liggur í hlutarins eðli og verður varla misskilið. Ef Strandamenn vilja gera samþyktir um einstaka firði í Strandasýslu, gera þeir það vitanlega einir, en ef þeir ætla að gera samþykt um veiði í Hrútafirði, yrðu þeir að gera það í samráði við Vestur-Húnvetninga. En það er annað, sem þyrfti að leiðrjetta í frv., og það er dálítil prentvilla. Skerið heitir sem sje Skriflusker en ekki Skreflusker; það hefir líklega einhver Sunnlendingurinn sett orðið og stafað það upp á sína vísu. Það er sú breyting, sem jeg gæti lagt til að yrði gerð, og jeg býst ekki við, að það hafi neina þýðingu að vísa því aftur til nefndarinnar, því að hún kemst varla að heppilegri niðurstöðu en hún hefir þegar komist.
Vitanlega sá háttv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) enga galla á frv.; hann langaði bara til að reka hornin í það.