01.09.1917
Efri deild: 45. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)

112. mál, herpinótaveiði á fjörum inn úr Húnaflóa

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Það var að vísu nokkur efi á því hjá sjávarútvegsnefndinni, hvort þörf væri lagasetningar þessarar, en, eins og nefndarálitið ber með sjer, þá varð það þó niðurstaða nefndarinnar að mæla með því, að málið nái fram að ganga.

Sjálfur er jeg svo ókunnugur á stöðvum þeim, sem frv. nær til, að jeg get ekki dæmt um, hversu mikil þörf er þessa, en með því að Alþingi hefir áður veitt slík heimildarlög fyrir Eyjafjörð og Skagafjörð, þá sýnist það ekki vera rjett, að löggjafarvaldið hafi á móti því að veita sömu heimild fyrir Húnaflóa.

Jeg vil því, fyrir hönd nefndarinnar, mæla með því, að málið nái fram að ganga.