01.09.1917
Efri deild: 45. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1311)
112. mál, herpinótaveiði á fjörum inn úr Húnaflóa
Guðjón Guðlaugsson:
Jeg er kunnugur á stöðvum þeim, sem frv. þetta á að ná til, og veit, að það er almennur vilji manna þar, að frv. þetta nái fram að ganga.
Aðallega nær frv. þetta til þriggja fjarða í Strandasýslu, Ingólfsfjarðar, Reykjarfjarðar og Steingrímsfjarðar.
Af reynslu þeirri, er fengist hefir um herpinótaveiði á Reykjarfirði, virðist það vera sýnt, að ef síld er veidd með herpinótum yst í firðinum eða fram undan Gjögri, þá eyðilegst alveg síldarafli fyrir báta, þótt síld sje nóg fyrir utan þessa línu og megi þar veiða hana með herpinótum.
Á Ingólfsfirði horfir málið öðruvísi við; þar eru sker yst í firðinum, og því engar líkur til, að heimildin yrði notuð þar.
Um Steingrímsfjörð er hið sama að segja og um Reykjarfjörð, að síldveiði mundi eyðileggjast fyrir opna báta, ef stunduð væri herpinótaveiði þar inni á firðinum. En meinlaust mundi vera, þótt hún væri stunduð fyrir utan þá línu, sem þar er dregin.
Jeg vil því leggja til, að frv. þetta verði samþykt, eins og það nú liggur fyrir.
Að eins vil jeg drepa á eina misfellu, sem á er frv. Var að vísu bent á hana í háttv. Nd.; hún er sú, að í frv. stendur rangt nafn, Skreflusker, í staðinn fyrir Skriflusker.
Þessu rangnefni þarf að breyta, og vona jeg, að gera megi það við endurprentun frv.