08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (132)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Kristinn Daníelsson:
Mjer þykir leitt að geta ekki hallast að till. þessari, þar sem svo virðist, sem hilli undir tekjur allmiklar, ef hún yrði samþykt.
Því er haldið fram, að þetta ríði ekki í bága við bannlögin, og að bitter þessi sje samsettur af þeim efnum, að enginn þoli að neyta hans í óhófi sem áfengis.
En ekki get jeg annað en borið á móti því, að bitter þessi hafi ekki verið notaður sem áfengi. Jeg hefi, meira að segja, verið bæði sjónar- og heyrnarvottur að því, að menn hafa keypt hann í því skyni. Hvernig þeim mönnum hefir orðið af nautn hans veit jeg ekki.
Eitt af því, sem sjerstaklega hvetur mig til þess að vera á móti till., er það, að mjer þykir hörmulegt til þess að vita, að fólk skuli vera að kaupa slík svikalyf, sem eftir orðum læknanna koma engum að liði, nema ef vera skyldi fyrir trúna á þau. Mjer hefir gramist mjög að sjá fátækan almúgann fleygja út stórfje fyrir ýms leyndarlyf, og það gladdi mig, þegar þessi Brama- og Kínapest tók að rjena, og jeg hygg ekki gott til þess, ef hún legðist aftur yfir landið.
Jeg verð að segja það, að jeg sá eftir aurunum úr sveitarsjóði þeim, er jeg átti að gæta, sem beðið var um í því skyni að kaupa slík lyf. Það var leiðinlegt að neita um þá, en enn þá leiðinlegra að fleygja þeim út í slíkan hjegóma.
Það kann að vera rjett, að það sje bagalegt fyrir manninn, ef birgðir þær, er hann á hjer, verða til ónýtis. En þó hygg jeg, að hann sje búinn að græða miklu meira en því nemur, af almenningi hjer.
Jeg hefði að vísu ekkert á móti því að fá þessar krónur í landssjóð, en þegar alls er gætt, hygg jeg að þær yrðu ofdýru verði keyptar.