08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (133)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Magnús Kristjánsson:
Jeg get ekki sagt, að hjer sje um stórmál að ræða. Þó finst mjer, ef hægt er með þessu móti að útvega tekjur, að þá sje ábyrgðarhluti að hafna því. Jeg lít svo á, að með því væri fulllangt gengið, þrátt fyrir það, þótt mönnum hætti til þess hjer að leyfa sjer að gerast fjárráðamenn annara og hafa jafnvel áhrif á það, hvers menn neyta.
Jeg efast ekki um, að hv. þm. Snæf. (H. St.) hafi flutt ræðu sína af sannfæringu, en því er nú einu sinni svo varið, að læknum hættir til að hafa óbeit á öllum leyndarlyfjum. Ef til vill er það ekki altaf að ástæðulausu, en oft mun vera ofmikið úr því gert. En reynslan er sannleikur, og því verður ekki neitað, að mörgum hefir orðið gott af að neyta slíkra lyfja. Jeg geri því ekki mikið úr þeim mótbárum gegn till., að það geti orðið mönnum að heilsutjóni að neyta lyfsins; slíkar mótbárur geta verið góðar og gildar frá hans sjónarmiði, þar sem þessir hleypidómar eru nú einu sinni svona ríkir hjá læknunum.
Þá var sjerstaklega tvent, sem jeg vildi benda á. Í fyrra lagi það, að úr því að löggjöfin veitir mönnum heimild til atvinnurekstrar, þá verður því ekki neitað, að það er illa að farið, þegar komið er aftan að mönnum, þeim óvörum, og stóreignir þeirra gerðar verðlausar, eins og hjer á sjer stað. Og líklega mundi hver einasti íslenskur borgari þykjast harðrjetti beittur, ef fyrir slíku yrði. Í öðru lagi virðist mjer það hreinn og beinn Molbúaháttur, ef jeg má viðhafa slík orð, að hafna þessu. Og ástæður þeirra, sem móti mæla, get jeg alls ekki talið svo veigamiklar, að þær nægi til þess að hafna till., sem bæði getur orðið til þess að afla tekna og bæta úr rangsleitni, sem framin hefir verið gegn eiganda birgðanna.
Jeg skal svo ekki fjölyrða meir um málið, en verð að álíta það, vægast sagt, hlægilegt að fella till., vegna ástæðna þeirra, sem þegar eru fram komnar.