11.08.1917
Neðri deild: 31. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1460 í B-deild Alþingistíðinda. (1374)

131. mál, seðlaupphæð

Benedikt Sveinsson:

Jeg skil tæplega í því, að háttv. þingdeild þyki hjer um það smámál að gera, að hæfilegt sje, að það gangi umræðulaust í gegnum þingið, og sýnist mjer þó helst mót á því. En hjer er vissulega um svo mikla hagsmuni að ræða, að nauðsyn ber til, að deildin geri sjer glögga grein fyrir málinu, áður en hún afgreiðir það.

Það kom fram við 1. umr. málsins, að háttv. fjárhagsnefnd flytur frv. fyrir bænastað landsstjórnarinnar. Áður, þegar slíkt leyfi hefir verið veitt, hefir það átt að vera til þess að bæta úr gjaldmiðilsþörf landsmanna, en nú er að heyra, að þörfin sje orðin þeim mun meir knýjandi, að landssjóður sjálfur sje svo mjög orðinn upp á bankann kominn, að hans vegna verði að veita ótakmarkaða heimild til seðlaútgáfu, enda skuldi nú landssjóður bankanum 5 miljónir kr.

Það er mjög leitt að heyra, að landssjóðurinn skuli vera svona aðþrengdur, en hvað sem því líður, þá hygg jeg, að veiting hins aukna eða ótakmarkaða seðlaútgáfurjettar verði þó fyrst og fremst að skoðast í þágu bankans sjálfs. Hjer er um stórkostleg hlunnindi að gera bankanum til handa, er landið hefir á valdi sínu að veita honum, og finst mjer, að eitt allra fyrsta skilyrðið fyrir því, að honum sjeu veitt þessi hlunnindi, sje það, að landssjóður fái góð og rýmileg kjör hjá bankanum á lánum þeim, sem hann þarf að taka hjá honum, samkvæmt því, sem stjórnin segir. Það sýnist liggja ljóst fyrir, að hægast muni að ná góðum lánskjörum hjá bankanum einmitt nú, áður en þingið hefir fengið honum hin auknu rjettindi í hendur, og ætti það því beint að vera sett sem skilyrði af þingsins hálfu, að samningar þessir sjeu fullgerðir áður en lög þessi ganga hjer í gegnum deildina.

Annars mun mega fyllilega efast um, að nauðsyn þessa máls sje svo brýn, sem stjórnin hefir látið í veðri vaka. Það eru ýmsar aðrar leiðir en þessi færar fyrir stjórnina til þess að afla fjár. T. d. mætti fara að dæmi annara þjóða, að landssjóður gæfi út smá-»obligationer« eða skuldabrjef, er nota mætti til launagreiðslu og verið gætu lögmætur gjaldmiðill. Sömuleiðis gæti komið til greina á þessum tímum að fá Landsbankanum í hendur aukin seðlaútgáfurjettindi, eftir samkomulagi við Íslandsbanka. Að minsta kosti er þetta, sem jeg hefi nú nefnt, þess vert, að það sje athugað. Það gæti líka komið til mála, að landið gerði þá dýrtíðarráðatöfun að taka Íslandsbanka eignarnámi, og neytti til þess ákvæða stjórnarskrárinnar, auðvitað svo, að fult verð kæmi fyrir.

Í öðrum tölulið 1. greinar frv. er ákveðið, að bankinn greiði við lok hvers mánaðar vexti, 2% á ári, af upphæð þeirri, er seðlaupphæð sú, sem úti er í mánaðarlok, fer fram úr 2½ miljón kr., og málmforðinn nægir ekki til. Þetta hefir nú áður þótt lágt gjald, og á undanförnum þingum hefir því verið haldið fastlega fram af bankafróðum mönnum, að bankinn mundi standa sig við að gjalda 4%. Jeg skil ekki í, að nein sú breyting sje á orðin í þessu efni, að ósanngjarnt væri að krefjast þess gjalds. Þó gæti komið til mála að slá eitthvað af þeirri kröfu, ef samningar við bankann gætu þá fengist hagkvæmari en ella. Það er auðvelt að sjá það af hag bankans, að hann hefir hingað til ekki verið hart leikinn af þinginu, því að samkvæmt reikningi bankans fyrir árið 1916 var gróðinn það ár samtals 891,673,25 kr., eða nær 9/10 miljón króna, og er það nær furða, að bankinn skuli geta rakað saman svo miklu fje á einu ári, af ekki meira stofnfje en hann hefir yfir að ráða.

Jeg skal svo ekki orðlengja þetta frekara, en vil brýna það fyrir deildinni að kasta þessu máli ekki frá sjer í flaustri, því að hjer er um mikilvægan rjett og mikla hagsmuni að tefla.