16.08.1917
Neðri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í B-deild Alþingistíðinda. (1388)

131. mál, seðlaupphæð

Benedikt Sveinsson:

Það er leitt, að háttv. nefnd skuli ekki hafa getað tekið til greina nema eina af brtt. vorum, og því leiðara er það, að hagur landsins skuli vera þannig, eftir því sem hæstv. forsætisráðherra heldur fram, að hann treystir sjer ekki til að framfylgja þeim kröfum, sem brtt. fer fram á. Hæstv. forsætisráðherra segir, að brtt. sje svo ósanngjörn, að það sje sama að samþykkja hana og að knýja bankann til að heimta strax mikið af því fje, sem hann á nú hjá landssjóði, og að hann vissi þá ekki, hvernig að ætti að fara. Sú mynd af hag landssjóðs, sem hjer er dregin upp, er alt annað en glæsileg, og sje hún alls kostar rjett, þá hefir stjórnin farið allógætilega að ráði sínu og sýnt litla fyrirhyggju, ef hún hefir hagað þannig lántökum sínum hjá Íslandsbanka, að hann gæti fyrirvaralítið eða fyrirvaralaust sagt upp lánunum. Það klingir altaf í eyrum, að það sje dýrt fyrir bankann að fá peningalán erlendis. Hæstv. forsætisráðherra gaf þær upplýsingar, að bankinn mundi nú skulda um 7 miljónir króna erlendis. Þetta er nær ótrúlegt, þegar þess er gætt, hve mikið annað fje hann hefir í vörslum sínum. 31. desember síðastliðinn er það talið þannig í reikningi bankans:

Innst.fje á hlaupareikn. kr. 4,133,576.31

Innstæðufje með sparisjóðskjörum ... — 1,608,207.33

Innlánsfje með sparisjóðskjörum ... — 5,400,632.51

eða samtals kr. 11,142,416.15

Af sumu af þessu fje greiðir hann 4—4½% í vexti, og af því, sem á hlaupareikningi er, ekki meira en 3%. En þá átti hann og í bönkum erlendis geymdar kr. 4,286,968.41, eða með öðrum orðum rúma l¼ miljón kr. meira en hlutafjeð nemur, sem er 3,000,000 kr. Það er auðsjeð af þessu yfirliti, að það er mestmegnis innlent fje, sem hann hefir verslað með. Því miður liggja ekki fyrir skýrslur um viðskifti bankans við landssjóð. En jeg held því hiklaust fram, að landssjóður sje besti viðskiftavinur bankans, og því ólíklegt, að bankinn geti ekki veitt landssjóði töluvert betri lánskjör en öðrum; og þegar litið er á hinn gífurlega gróða bankans síðasta ár, þar sem 3,000,000 kr. stofnfje hefir gefið í arð yfir 800,000 kr., þá má ólíklegt telja, að honum væri mjög íþyngt með því að greiða landssjóði að minsta kosti 3% af seðlum þeim, sem frv. ætlast til að hann greiði gjald af. Að þessu athuguðu vona jeg, að varatillaga vor fái að minsta kosti fram að ganga.