10.08.1917
Neðri deild: 30. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1480 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)
146. mál, almenn hjálp
Bjarni Jónsson:
Jeg var því miður ekki viðstaddur er háttv. frsm. (Þorst. J.) tók til máls, en hefi þó heyrt nokkuð af því, er hann sagði, og sjeð afsprengi þetta, sem hjer er á ferðinni, og jeg get ekki annað sagt en að mjer finst það einkennileg aðferð, sem þessi ágæti meiri hluti vill fara í þessu máli. Eftir allan þennan tíma, sem hann hefir haft til að íhuga málið, þá verður niðurstaðan sú, að hann kemur hjer með sjerstakt frv., sem þó hæglega hefði mátt sameina við okkar till., því að í því er ekkert, sem ekki er hjá okkar minni hluta, nema þessi lánveiting, sem segja má að sje hennar verk. Því að við höfðum einnig í okkar tillögum ráðið til, að veitt yrði fje til atvinnubóta, og eins að veitt yrðu lán vegna vandræða þeirra, er ófriðurinn veldur. Það er því að eins 1. gr. í frv. þeirra, sem ekki er tekin úr breytingartillögum okkar, og hefðu þeir vel getað flutt hana sem viðbótartillögu við brtt. okkar, og ekki þurft að koma með nýtt frv. Eins má segja um þá, sem dagskránni ráða: Síðast drekkur sá í Vík, sem fyrstur biður. Þetta frv. er tekið fyr en brtt. okkar, enda þótt það sje miklu seinna fram komið; það hefði mátt verða samferða þeim, svo að mönnum yrði ljósara, hvar þetta mikla starf meiri hlutans liggur, en það er samning 1. gr. Hjálpin vegna dýrtíðarinnar er, samkvæmt þessu frv., í því fólgin að veita sveitar- og bæjarfjelögum lán, til þess að þau geti aftur lánað einstaklingum. Mjer fyndist nær að kalla frumvarpið frv. til laga um almenn lán vegna dýrtíðarinnar. Þá hefðu menn ekki þurft að búast við meiru, en efndirnar verða. Þetta ætlar meiri hlutinn sjer að láta koma í staðinn fyrir frv., sem nefndin fjekk til meðferðar og hljóðaði um að selja vöru með afslætti, og þar að auki hefir hann tekið upp 2. og 3. gr. eftir till. minni hlutans, en raunar hafði nefndin talað um það áður en hún klofnaði. Ætlun meiri hlutans er auðsjáanlega að gera með þessu frv. hin lögin óþörf. En nú vil jeg benda á tvent. Hitt frv., með þeim breytingum, sem við leggjum til á þgskj. 259, getur alveg eins staðist og orðið samþykt, þótt þetta frv. nái fram að ganga. Það er að eins óviðkunnanlegt að samþykkja 2 lög, sem eru samhljóða, því að 2. og 3. gr. þessa frv. eru teknar eftir okkar tillögum og eru nærri því eins. Hins vegar er það aðgætandi, að eftir þessu frv., er um sama sem enga hjálp handa almenningi að ræða, heldur að eins lánveitingu, sem sækja verður um. Þetta er alt öðru vísi hjálp en sú, sem minni hlutinn fer fram á, því að eftir till. hans er ekki hægt að undanskilja neinn fátækling, því að allir fá helstu nauðsynjavörurnar undir verði. Þeir efnaðri borga svo auðvitað síðar með skatti það, sem þeir hafa fengið að óþörfu. Jeg held því, að þetta frv. meiri hlutans sje óþarft, enda býst jeg við, að hann hefði getað komist að samningum við minni hlutann um að bæta lánsákvæðinu inn í tillögur hans. Þótt jeg hafi ekkert umboð frá minni hlutanum, hygg jeg, að mjer sje óhætt að fullyrða, að hann hefði fengist til að bæta 1. gr. á þgskj. 259 við brtt. sínar sem viðaukatill. við frv.