10.08.1917
Neðri deild: 30. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1483 í B-deild Alþingistíðinda. (1402)
146. mál, almenn hjálp
Frsm. (Þorsteinn Jónsson):
Mjer kom það ekki á óvart, þótt háttv. þm. Dala. (B. J.) teldi ekki mikið nýtt nje nýtilegt í frv. Hann sagði, að meiri hlutinn hefði getað komið með brtt. við brtt. þeirra og sparað sjerstakt frv., en því er nú að svara, að við gátum ekki verið samþykkir fyrirsögninni, því að þar var um afslátt á vöruverði að ræða. (B. J : Þingmaðurinn sjer líklega, að við höfum breytt fyrirsögninni). Meiri hlutinn gat ekki fallist á orðrjettar till. minni hlutans, enda ljet hann ekki svo lítið að sýna okkur þær, eftir að bjargráðanefndin klofnaði. (B. J.: Hún klofnaði fyrir fult og alt). Jeg sje ekki, þótt hún hafi klofnað fyrir fult og alt, að minni hlutinn hefði ekki getað leitað samkomulags við meiri hlutann. — Meiri hlutinn taldi málið svo mikilvægt, að hann athugaði það lengur en minni hlutinn, sem hafði þá hægu aðferð að athuga málið lítið og koma fljótt fram með álit sitt. (B. J.: Fljótt og vel). Fyrst að frv. eru 2, er hægara að greina í sundur þær leiðir, sem hlutar bjargráðanefndar vilja fara. Viðvíkjandi því, er háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) sagði, að þessi lög væru óþörf, því að bankarnir gætu lánað sveitarfjelögunum, þá er því til að svara, að bankarnir eru alls ekki skyldugir til þess. Ef svo færi, að sveitarfjelögin þyrftu stórkostleg lán, gæti svo farið, að bankana þryti fje. En, sem sagt, ef einhver ný ráð koma fram, sem jeg, við nánari athugun, álít að verði líklegri til haldgóðra nota til bjargráða almenningi en þau, sem hingað til hafa fundist, þá mun jeg ganga inn á þau. En það frv., sem minni hlutinn kom með, sje jeg ekki að geti orðið heillavænlegra en frv. okkar meiri hlutans, nema síður sje. Höfuðatriðið í máli þessu er að hjálpa mönnum til að bjarga sjer, og þar næst að hjálpa þeim, er hjálpar þurfa, en eyða ekki fje handa þeim, sem þurfa ekki á hjálp að halda.