22.08.1917
Neðri deild: 40. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1488 í B-deild Alþingistíðinda. (1410)

146. mál, almenn hjálp

Framsm. (Þorsteinn Jónsson):

Frumvarp það, sem háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) flutti um dýrtíðarstyrk, var rætt allrækilega um daginn, þegar dýrtíðarmálin voru til umræðu, þó að svo sýnist, sem hv. þm. (G. Sv.) hafi ekki þótt nóg komið þá. Svo var á hv. þm. (G. Sv.) að skilja þá, að hann væri ekki hræddur við, að hjálp sú, er hann vildi veita, mundi koma ofseint, og þá ætti hann því síður að vera hræddur um, að hún kæmi ofseint eftir fyrirmælum þessa frv. Jeg hygg það vera allsendis ástæðulausan ótta að kvíða því, að sveitarstjórnir muni láta þurfalinga sína svelta í hel, á meðan þær eru að útvega þeim fje til hjálpar. Jeg er þess fullviss, að þær muni bæði vilja og geta veitt þeim bráðabirgðahjálp, ef í nauðir rekur; til þess hefir hver úrræðagóð sveitarstjórn ýmsa vegi. En, sem betur fer er ekki enn þá um neina almenna neyð að ræða, svo að til skjótra úrræða þurfi að grípa, og vinst vonandi nægur tími til ráðstafana, áður en á almennri hjálp þurfi að halda. Jeg vantreysti engan veginn sveitarstjórnum í samvinnu við landsstjórnina að bjarga mönnum svo vel, sem unt er að gera, með því að nota þær heimildir, sem veittar eru í frv. þessu.

Það lítur helst út fyrir, að hv. þm. (G. Sv.) hafi fundið þetta upp til að leggja stein í götuna fyrir frv. þetta, sem þó, eftir atkvgr. að dæma, er það frv. um dýrtíðarmál, sem hv. deild álítur að koma muni að almennustum og haldbestum notum af frv. þeim, sem fram hafa verið borin um almenn bjargráð hjer í deildinni.