22.08.1917
Neðri deild: 40. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1491 í B-deild Alþingistíðinda. (1414)

146. mál, almenn hjálp

Frsm. (Þorsteinn Jónsson):

Jeg heyrði á ræðu háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), að hann lagði mikla áherslu á, að lán það, sem menn þyrftu að fá, yrði ekki talinn sveitarstyrkur. Þar er jeg honum sammála; og ef honum þykir ekki nógu vandlega um það búið í frv., að hjálp sú, sem menn kunna að þurfa að fá áður en í lán næst, sje eigi þannig talin, þá er langt frá, að jeg hafi á móti því, að hann komi með brtt., sem tryggi það. Annars er það einkennilegt, að háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) skuli stökkva upp á nef sitt og telja það brigslyrði og dylgjur, þótt sýnt sje fram á með rökum, hvað frv. hans um dýrtíðarstyrk er grunnhugsað:

Hæstv. forsætisráðherra mæltist til, að bjargráðanefnd tæki málið til nýrrar yfirvegunar, og varpaði því fram, að ráðlegt kynni að vera, að skipuð væri nefnd, stjórninni til aðstoðar um dýrtíðarmálin. Mjer hafði þegar áður dottið þetta í hug, að rjett mundi að skipa nefnd, stjórninni til aðstoðar við framkvæmd þessara mála, og að þeirri nefnd væri fengið töluvert vald í hendur og stjórninni veitt rýmra vald en gert er í frv.

Jeg hefi sagt það áður, og endurtek það enn, að meiri hlutinn hefir viljað fara þá leið, er hann telur vænlegasta til að bjarga landi og lýð á þessum erfiðu tímum; og vona jeg, að hann hafi hitt þá leiðina, sem líklegust er af þeim, sem enn hefir verið bent á. Að öðru leyti býst jeg við, að formaður bjargráðanefndar muni svara athugasemdum hæstv. forsætisráðherra.