22.08.1917
Neðri deild: 40. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1500 í B-deild Alþingistíðinda. (1419)

146. mál, almenn hjálp

Bjarni Jónsson:

Jeg hafði hugsað mjer að minnast á ummæli forsætisráðherrans og fundarbókina, sem háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) vitnaði í. Hann kvað tillögu frá ráðherranum, sem færi í líka átt og frv. þetta, bókaða þar. (P. J.: Í líka átt og 2. gr.). Af því að háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) sagði, að sjer kæmu orð hæstv. ráðherra á óvart, tel jeg ekki rangt að segja frá því, hvernig skýrt er frá áliti forsætisráðherrans í fundabókinni. Þar stendur, að stjórnin taldi leið hans (J. B.) vart færa, en álitamál að selja einhverja einstaka vörutegund undir verði. Kvað hún sjer þykja æskilegt að fá heimild þingsins til að veita mönnum atvinnu við störf í landsins þarfir, svo sem við undirbúning byggingu stórhýsa o. s. frv.

Menn hljóta því að sjá, að það, sem forsætisráðherrann hefir sagt við bjargráðanefndina um þetta mál, er í fylsta samræmi við ummæli hans nú; að eins hefir hann lagt meiri áherslu á það nú, að hann álítur þörf á því, að landssjóður selji vörur undir verði, og get jeg eigi lastað það, þótt hann komist að þessari niðurstöðu. Það er vitanlegt og skiljanlegt, að þær aðferðir eru ófærar, þótt þær sjeu ekki í sjálfu sjer ranglátar, að undanskilja þá, sem efnaðir eru. Það er óframkvæmanlegt á annan veg en þann, sem minni hl. bjargráðanefndarinnar hefir lagt til, því að framkvæmdirnar yrðu svo flóknar og dýrar, ef það væri haft öðruvísi, að menn verða að þola það, þótt einhver, sem síður þyrfti ívilnun, slæðist með. Jeg hefi þegar bent á, að mjög ljett er að leggja á menn skatt með tilliti til þessa. Hverjum getur dottið í hug, að hver og einn, sem þarf hjálp, rati á það að biðja sveitarstjórnirnar um lán. Við skulum bara hugsa okkur bæ með 15000 íbúum, eins og Reykjavík, þar sem 9/10 þurfa hjálpar við. Það yrðu aldrei mjög margir af þeim, sem hefðu vitneskju um þessi lög, og rötuðu því á rjettan stað eða áttuðu sig á vilja þingsins í þessu efni. Það yrði alveg eins og sagan um storkinn og tófuna, sem jeg sagði hjer um daginn og ætla því ekki að endurtaka nú.

Það er ekki undarlegt, þótt menn komist að því, eins og hæstv. forsætisráðherra, að þetta er eina leiðin til að draga nokkuð úr dýrtíðarvandræðunum, að selja, þótt ekki sje nema eina vörutegund, undir verði, og selja hana eftir seðlum. Það er einfaldasta leiðin til framkvæmda; og þótt einstöku efnaðir menn flæktust með og nytu góðs af, þá verður ekki fyrir það synt. Það yrði að minsta kost mjög flókið að fara að flokka menn niður eftir efnum, og jeg held varla, að hægt sje að framkvæma það. Háttv. þm. S.-Þ.

(P. J.) taldi nú um seinan að koma með nokkrar breytingar í þá átt, þar sem þær tillögur, sem miðuðu að því, hefðu verið feldar hjer í deildinni um daginn. En ekki er það nú alveg dæmalaust, að eitthvert atriði sje samþykt hjer í þinginu, þótt búið sje að fella það einu sinni. Á þinginu 1915 var það felt að stofna dósentsembætti í líffærafræði við læknadeild Háskólans, en nokkrum dögum seinna var samþykt að veita nákvæmlega sömu upphæðina til kenslu í sömu fræðigrein. Það væri því ekki í fyrsta sinni, sem þingið biti í halann á sjálfu sjer, þótt það samþykti nú tillögur í svipaða átt og þær, sem það feldi um daginn. Jeg heyrði, að sami háttv. þm. (P. J.) sagði, að sjer væri sama um það, sem háttv. þm. Dala (B. J.) væri að taka fram í. Það var við að búast, að honum væri sama um það, því að þm. Dala (B. J.) tekur ekki fram í, nema eitthvert vit sje í því, sem hann segir. En jeg veit þó eitt, sem háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) er ekki sama um, og það er það, hvernig tillögurnar reynast, þegar til framkvæmdanna kemur.

Þá kem jeg að þessari 10 ára náð hv. meiri hluta bjargráðanefndar. Þeir segja, að dýrtíðarlánin, sem þeir vilja veita, eigi ekki að vera sveitarstyrkur, en svo stendur í sama lagaframvarpinu, að lánið skuli samt verða sveitarstyrkur eftir 10 ár, ef það er þá ekki greitt. Nú er það öllum ljóst, að margur mundi ómögulega geta borgað lánið eftir 10 ár. Margur mundi alls ekki geta borgað það meðan hann lifði. Eina ráðið til þess að losna við það að verða sveitarlimur væri þá það að fara niður í gröfina. Getur verið, að það yrðu talin hyggileg búmannsverk að sjá um það, að þeir væru ekki settir á, en jeg býst nú ekki við, að neinn yrði til að sinna þeim búmannsverkum. Eina ráðið er því að breyta þessu ákvæði, ef hægt er að koma nokkrum breytingum fram. Jeg held, að margir mundu svelta sig og líða nauð, áður en þeir bæðu um þessi lán, upp á þá skilmála að afhenda rjettindi sín og gerast sveitarlimir. Jeg hefi ekki haft tíma til að búa út breytingartillögu, en ef nefndin verður við tilmælum hæstv. forsætisráðherra, og tekur málið til nýrrar yfirvegunar til 3. umræðu, þá sest jeg á meðan að fótum feðranna, og nem af þeim þeirra fræði. Það er þó að minsta kosti hægt að koma með brtt. um það að láta þessar skuldir fyrnast á 10 árum. Það hefir aldrei verið felt. Frv. var úrskurðað fallið, þegar búið var að fella 1. gr. þess. En þess var ekki gætt, að í 2. gr. var einstakt atriði, sem vel gat staðið, þótt 1. gr. væri feld. Jeg mun því að minsta kosti reyna að koma þeirri breytingu að við 3. umr., að dýrtíðarskuldir sjeu látnar niður falla, ef þær eru ekki borgaðar innan 10 ára.