14.09.1917
Neðri deild: 60. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1546 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)

146. mál, almenn hjálp

Fjármálaráðherra (S. E.):

Hv. 2. þm. Rang. (E. J.) og háttv. 1. þm. Árn. (S. S) færðu það sem ástæðu gegn niðurfærslu kolanna, að þeim mundi verða ranglátlega úthlutað. Þetta er mjög ljettvæg ástæða. Jeg vona, að nú á tímum finnist ekki þær bæjar- eða sveitarstjórnir, sem óttast megi að svo fari að ráði sínu. En jafnvel þótt fyrir kynni að koma einhver misbrúkun, þá má það þó ekki aftra öllum tilraunum til þess að ljétta undir með fátæklingum í þessum voða.

Að öðru leyti læt jeg mjer nægja að vísa til þess, sem jeg hefi áður sagt.

Mjer fanst háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) taka eitthvað kuldalega í þetta mál. Jeg veit, að það kemur ekki til af því, að honum sje það lagið, heldur líklega af því, að hann hefir ekki kynt sjer málið nógu rækilega. Jeg er viss um það, eftir hans góða hjartalagi, að hann mundi ekki vera þröskuldur í vegi þessara lífsnauðsynja bæjanna, og jeg vona, að hann verði það ekki, eftir að hann hefir íhugað málið.