14.09.1917
Neðri deild: 60. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1561 í B-deild Alþingistíðinda. (1468)

146. mál, almenn hjálp

Fjármálaráðherra (S. E):

Jeg vil að eins benda á, að í 3. gr. stendur: »Sýslu- og bæjarfjelög selja kol þessi aftur, án hagnaðar, þeim, er helst þurfa hjálpar með, og má vera mismunandi verð á þeim, eftir ástæðum kaupanda«. Býst jeg við, að ef þm. vilja athuga þetta, sjái þeir, að með þessum orðum er sjerstaklega verið að hugsa um hjálp til þeirra, sem verst eru efnum búnir. (S. S.: Það þykjast allir þurfa hjálp, embættismenn hvað þá aðrir!).