10.08.1917
Neðri deild: 30. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1473)
150. mál, dósentsembætti í læknadeild Háskóla Íslands
Forsætisráðherra (J. M.):
Þetta frv. er komið fram samkvæmt tilmælum Háskólans til stjórnarráðsins. Taldi stjórnin sjálfsagt að verða við þessum tilmælum, enda þótt engin hætta sje á, að staðan verði lögð niður. Svo mikil nauðsyn er á, að góð kensla sje í þessum greinum, sem snerta svo mikið heilbrigði landsmanna. Hjer er því í raun og veru að eins um form að ræða.
Jeg tel því víst, að allir sjeu sammála hv. þm. Stranda. (M P.) um, að málið eigi að ná fram að ganga.