22.08.1917
Neðri deild: 40. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (1496)
162. mál, bráðabirgðahækkun á burðargjaldi
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Það lítur út fyrir, að þetta frv. eigi litlum vinsældum að fagna. Því er fundið alt til foráttu.
Það er talinn lítill tekjuauki að því, þótt það verði samþ. Nú kalla menn, sem annars gera ekki lítið úr peningunum, það lítinn tekjuauka, að landssjóði bætist 100 þús. krónur. Það er þó mín skoðun, að nú sje ástæða til að safna í sarpinn, og ekki sje ástæða til að slá hendinni við 100 þús. kr., þótt það sje kann ske ekki mikið. (Sv. Ó.: Hver segir, að tekjuaukinn verði 100 þús.?) Jeg geng að því vísu, að póstflutningar myndu verða líkir eftir sem áður. Jeg fæ ekki skilið, á hverju það er bygt, að þeir muni minka. Þetta er sama ástæðan sem altaf er á ferðinni, þegar um hækkun skatta og tolla er að ræða. En reynslan hefir aldrei orðið sú, að menn hættu að kaupa eða nota þá hluti, sem tollur hefir verið hækkaður á. Það myndi enginn hætta að skrifa kunningja sínum eða vandamanni, þótt hann verði að greiða 20 aura í burðargjald, í stað 10 aura.
Önnur mótbáran gegn hækkuninni er sú, að óviðfeldið sje að leggja skatt á andleg viðskifti. Jeg kalla það ekki skatt, þótt tekið sje við fullu gjaldi fyrir póstflutning. Þótt þetta kynni að vera óþægilegt fyrir bóka- og blaðaútgefendur, tel jeg mjög vafasamt, hvort landssjóði beri að flytja bækur og blöð fyrir þá fyrir svo lágt gjald, að hann tapi á.
Það er harla einkennilegt, að í hvert einasta skifti, sem eitthvert frv. er borið fram um tekjuauka, þá rísa menn gegn því með ákafa, en benda ekki á neinar leiðir í staðinn, sem færar sjeu. Þetta er ekki til að hvetja menn til að leita að nýjum tekjustofnum, síst þegar jafnvel hæstv. forsætisráðherra kallar slíka viðleitni fálm út í loftið. Nú er þó útlit fyrir 1 milj. kr. tekjuhalla á næsta fjárhagstímabili, og einhver ráð verður að hafa til að jafna hann.
Þess vil jeg geta að lokum, að fjárhagsnefnd fellst ekki á að taka undan prentað mál, þótt hún geri það ekki að kappsmáli.