10.09.1917
Efri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)

162. mál, bráðabirgðahækkun á burðargjaldi

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Mjer kom það ekki á óvart, þótt einhversstaðar kæmi hljóð úr horni á móti þessari brtt. nefndarinnar. Jeg þóttist vita, að nógu margir myndu verða til þess að mæla móti því, þegar farið er fram á tekjuauka, og það ekki síst af flokki þeirra manna, sem fúsastir eru að greiða atkv. með ýmsum útgjaldahækkunum. Annars virðist svo, sem gjaldahækkanir og skuldir sjeu óskabörn háttv. deildar, en auknar tekjur megi hún ekki heyra nefndar.

Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) sagði, að ekki væri vert að íþyngja blöðum með þessu, þar sem þau væru ávalt gefin út með tekjuhalla og útgefendum til skaða. Jeg verð að játa það, að jeg hefi ekki fyr fengið vitneskju um það, að blaðaútgefendur væru slíkir guðsmenn, að þeir hjeldu úti blöðum sínum með stórum tekjuhalla árlega. En ef svo er, vil jeg ekki verða til þess að bæta þessu á bak þeirra.

En jeg þóttist nú samt hafa fært rök fyrir þeim orðum mínum áðan, að hækkun þessi leggist á kaupendur, en ekki útgefendur; að minsta kosti hefir svo farið enn þá sem komið er, að kaupendur hafa fljótt orðið þess varir, ef kostnaður hefir aukist við útgáfu blaðanna.