21.08.1917
Neðri deild: 39. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)

164. mál, tekjuskattur

Fjármálaráðherra (B. K.):

Jeg vil að eins upplýsa það, út af ræðu hv. þm. A. Sk. (Þorl. J.), að þótt einstök fjelög, sem stunda t. d. botnvörpuútgerð, greiði ekki tekjuskatt, þá greiðir þó hver einstaklingur, sem á í fjelaginu, slíkan skatt af tekjum sínum. Þessi gr. frv. snertir því að eins þá smærri útgerðarmenn, sem litlar tekjur hafa. Jeg held því, að ef þetta verður lögleitt, verði það afskapleg fyrirhöfn, en litlar tekjur í aðra hönd.