23.08.1917
Neðri deild: 41. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1603 í B-deild Alþingistíðinda. (1536)

164. mál, tekjuskattur

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Jeg hefi að svo stöddu engu við það að bæta, fyrir nefndarinnar hönd, sem fram var tekið við 2. umr. þessa máls. Jeg get þess að eins, að nefndin lætur brtt. á þgskj. 580 hlutlausa; hún lýsir ekki yfir stuðningi við hana, en lætur háttv. deild um það, hvort hún vill samþykkja hana eða ekki. Og nefndarmenn hafa sín atkv. óbundin.